Fjarskiptafyrirtækið Sýn hagnaðist um 273 milljónir króna á fyrri árshelmingi 2022, en til samanburðar tapaði félagið 348 milljónum á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í árshlutareikningi félagsins. Inn í tapi fyrri árshelmings árið 2021 er sölutap að fjárhæð 179 milljóna króna vegna sölu á færeyska hlutdeildarfélaginu Hey.
Tekjur Sýnar á fyrstu sex mánuðum ársins námu 11,7 milljörðum króna sem er 13,6% hærra en á sama tíma í fyrra. Tekjuhækkunin skýrist helst af góðum vexti í farsímatekjum, aðallega vegna aukningar IoT og reikitekjum en til viðbótar tvöfaldast tekjur Endor á milli tímabila, að því er kemur fram í árshlutareikningi. Tekjur Sýnar af auglýsingum halda áfram að aukast og eru nú hærri en fyrir heimsfaraldur.
Rekstrarhagnaður félagsins nam 723 milljónum króna á fyrri árshelmingi ársins 2022, sem er hækkun um 739 milljónir króna frá sama tímabili í fyrra. EBITDA nam 3.317 milljónum króna á fyrstu sex mánuðum ársins, sem er 15,3% hækkun frá síðasta ári.
Fjármögnunarhreyfingar á fyrri árshelmingi voru neikvæðar um 2,8 milljarða króna á móti 1,75 milljörðum á sama tímabili í fyrra. Innifalið í hreyfingunum eru kaup á eigin bréfum að fjárhæð 1,86 milljarða króna.
Eignir samstæðunnar námu 32,5 milljörðum króna og þá var eigið fé 8.888 milljónir króna. Skuldir félagsins í lok júní námu 23.640 milljónum króna og var eiginfjárhlutfallið því 27,3% í lok júní.
Heiðar Guðjónsson, forstjóri:
„Rekstrarhagnaður eykst um 740 milljónir á milli ára og við sýnum mesta rekstrarhagnað í sögu fyrirtækisins. Við náum að halda aftur af kostnaði en aukum tekjur um 14%. Ég hef fulla trú á að við höldum áfram að bæta ofan á tekjurnar en kostnaðurinn haldist hóflegur og því erum við á góðri leið með að ná því að hafa um 100 milljón króna hagnað á mánuði af reglulegri starfsemi sem ganginn í fyrirtækinu.
Við höfum fjárfest mikið í innri kerfum á síðustu þremur árum og það er langstærsta fjárfesting félagsins á tímanum. Hún fer núna að bera ávöxt með nýjungum í vöruframboði sem munu auka tekjur okkar og hlutdeild á markaði. Grunnurinn er því afar traustur.
Ritað var undir samning um samstarf við uppbyggingu á 5G sendum við Nova í júní sem hefur leitt af sér stærsta landsdekkandi kerfið. Eins styrkir það okkur enn frekar í því forskoti sem við höfum í hlutanetinu (IoT) með yfir milljón kort útistandandi en tekjuvöxtur framtíðar mun liggja að stóru leyti þar á farsímamarkaði.
Á fjölmiðlamarkaði sjáum við umtalsverða aukningu í tekjum af áskriftum og auglýsingum. Allir miðlar eru að vaxa og skila jákvæðri afkomu.
Þetta er síðasta afkomubirting sem ég tek þátt í og er ég einstaklega stoltur af því verki sem við höfum skilað á starfstíma mínum. Við höfum breytt algerlega stefnu fyrirtækisins, endurnýjað innri upplýsingakerfi, snúið við rekstri, endurfjármagnað félagið og gert allt þetta í miðjum heimsfaraldri. Framtíðin er svo sannarlega björt hjá Sýn hf.“