Úrvalsvísitalan OMXI 10 mjakaðist upp á við í dag og hækkaði um 0,33%. Dagslokagengið var 2.269,87 stig en ágætur gangur hefur verið á hlutabréfamarkaði síðustu vikur og hefur úrvalsvísitalan hækkað um 7% síðastliðinn mánuð.
Eftir 5,1% hækkun í nóvember byrjar desembermánuður ágætlega en heildarvelta á fyrstu tveimur viðskiptadögum er yfir 10 milljarðar.
Síminn leiddi hækkanir á markaði er gengi Símans hækkaði um tæp 6% í 222 milljón króna viðskiptum í dag. Gengi fjarskiptafyrirtækisins hefur nú hækkað um tæp 10% síðastliðna daga.

Hlutabréf VÍS héldu áfram að hækka
Ölgerðin hækkaði um 3,1% í 267 milljón króna veltu. Ölgerðin hefur átt góðu gengi að fagna á markaði í ár ólíkt mörgum öðrum félögum og hefur gengið hækkað um 27% á árinu.
Mun það vera næsta mesta hækkunin á markaði í ár en einungis hlutabréf Amaroq hafa hækkað meira en gengi málmleitarfélagsins hefur farið upp um 38% á árinu.
Hlutabréf í VÍS hækkuðu um 3,3% í 160 milljón króna veltu en gengi VÍS hefur verið að taka við sér síðustu vikur eftir miklar lækkanir í haust. Dagslokagengi VÍS undir miðjan nóvember var í kringum 14,2 krónur en gengið lokaði í 15,6 krónum í dag.
Hampiðjan lækkaði mest allra skráðra félaga og fór gengið niður um 2,4% í 70 milljón króna veltu á sama tíma og Alvotech lækkaði um 1% í 303 milljón króna veltu.