Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli október og nóvember hefur nú hækkað um 4,8% á síðastliðnum tólf mánuðm samkvæmt nýjum tölum frá Hagstofunni. Verðbólgan dróst saman um 0,3 prósentustig frá fyrri mánuði þegar hún mældist 5,1%.

Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði um 0,20% milli mánaða og hefur nú hækkað um 2,7% á síðustu tólf mánuðum. Árshækkun vísitölunnar án húsnæðis hjaðnaði um 0,1 prósentustig milli mánaða.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, svokölluð reiknuð húsaleiga, hafi hækkað um 0,9% milli mánaða og flugfargjöld til útlanda lækkuðu um 11,7%.

Spáðu 4,5-4,7% verðbólgu

Verðbólgumælingin var yfir spám greiningardeilda bankanna. Greiningardeildir Landsbankans, Íslandsbanka og Kviku banki höfðu spáð því að verðbólga yrði á bilinu 4,5-4,7% í nóvember.

Næsta boðaða vaxtaákvörðun Seðlabankans er þann 5. febrúar næstkomandi. Peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði stýrivexti úr 9,0% í 8,5% í síðustu viku.