Óskar Már Alfreðsson, fasteignasali hjá Domusnova, er launahæstur fasteignasala. Launatekjur hans á síðasta ári námu 1,8 milljónum króna á mánuði.
Í öðru sæti listans er samstarfsfélagi hans, Víðir Arnar Kristjánsson. Hann var einnig með 1,8 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Þórarinn Arnar Sævarsson, fasteignasali hjá RE/MAX, sömuleiðis með 1,8 milljónir króna á mánuði.
22 fasteignsalar eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæstu fasteignasalarnir:
- Óskar Már Alfreðsson, fasteignasali Domusnova - 1,8 milljónir króna
- Víðir Arnar Kristjánsson, fasteignasali Domusnova - 1,8 milljónir
- Þórarinn Arnar Ævarsson, fasteignasali RE/MAX - 1,8 milljónir
- Helgi Jón Harðarson, sölustj., eigandi, Hraunhamar - 1,7 milljónir
- Einar Páll Kjærnested, fasteignasali Fasteignas. Mosfellsb. - 1,7 milljónir
- Daði Hafþórsson, fasteignasali Eignamiðlun - 1,6 milljónir
- Hannes Steindórsson, fasteignasali Lind - 1,5 milljónir
- Jason Guðmundsson, fasteignasali Miklaborg - 1,4 milljónir
- Arnar Birgisson, frkv.stj. Eignaver - 1,4 milljónir
- Þorsteinn Yngvason, fasteignasali RE/MAX - 1,4 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði