Flestir eru sammála um mikilvægi þess að byggja upp fjölbreytt og kröftugt atvinnulíf, útflutningsdrifið og samkeppnishæft á alþjóðlegum markaði. Atvinnulíf sem veitir atvinnu og skapar verðmæti fyrir samfélagið er ekki bara undirstaða velferðar á Íslandi heldur líka í flestum löndum sem við berum okkur saman við.
Það er því fagnaðarefni á hverju ári þegar blómi síðasta árs er birtur í ársriti Frjálsrar verslunar og nú sem 500 veltumestu fyrirtæki landsins. Listinn er ágætis umræðugrundvöllur um atvinnulífið og hvernig það breytist á milli ára. Þá er það sérstakt fagnaðarefni að nú skuli listinn vera kominn í 500 fyrirtæki sem býður upp á samanburð við Fortune 500 og S&P 500 svo dæmi séu tekin af sambærilegum listum.
Á pari við Fortune 500
Þannig er fjölbreytni-vísir 500 stærstu á pari við Bandaríkin og mælist nú 30,3% sem er þá sambærilegt við 500 tekjuhæstu fyrirtæki Bandaríkjanna samkvæmt lista sem tímaritið Fortune birtir árlega. Áður hefur verið gerð grein fyrir því hvernig fjölbreytni-vísirinn er reiknaður en hann byggir á einkenni tekjudreifingarinnar.
Velta 500 stærstu í Bandaríkjunum er sannarlega meiri, en tekjudreifingin og fjölbreytnin er sambærileg og fellur vel að „lognormal“ dreifingu sem einkennir svo marga frjálsa markaði. Mælikvarðinn staðfestir að atvinnulífið á Íslandi er fjölbreytt, á pari við önnur vestræn ríki og endurspeglar heilbrigða atvinnuuppbyggingu.
Dreifingin bendir líka eindregið til þess að 500 stærstu endurspegli um 80% af atvinnulífi landsins og telst listinn í þeim skilningi gott þversnið af atvinnulífinu. Samanlögð ársverk voru til að mynda 82.090 þannig að margir ættu að tengja við listann.
Þrettán ný á lista yfir 100 stærstu
En blóminn viðheldur sér ekki sjálfur og til þess að auðga atvinnulífið og viðhalda heilbrigði þess á milli ára þarf bæði nýsköpun og athafnasemi.
Athafnasamar stjórnir og stjórnendur fjárfesta í nýsköpun til vaxtar, taka fyrirtæki yfir eða sameina við eigin rekstur og skipta starfsemi upp. Allt birtist þetta okkur sem árleg breyting á lista þeirra 500 stærstu. Umbreytingin á milli ára birtist okkur í hástökki eða falli sem reikna má sem einskonar veltuhraða.
Til samanburðar þá endurspeglar veltuhraði fyrirtækja í S&P 500 vísitölunni um 20 ára líftíma á þeim lista, það koma 25 ný fyrirtæki að jafnaði inn í vísitöluna á mill ára. Á íslenska listanum birtust 54 fyrirtæki sem náðu ekki á listann 2021. Það endurspeglar 10,8% veltuhraða og ef umhverfa veltuhraðans í prósentum er skilgreint sem meðal líftími fyrirtækja á lista þá jafngildir það aðeins um 10 ára líftíma.
Það skoðast í samhengi við 100 stærstu hvar veltuhraðinn endurspeglar 14 ára líftíma sl. 10 ár. Á síðasta ári birtust 13 ný á lista yfir 100 stærstusem rekja má til kröftugrar endurkomu ferðaþjónustunnar.
Hástökkvarar síðasta árs
Á topplistanum yfir mesta veltuaukningu á milli ára má finna þá hástökkvara sem gera tilkall til að ryðja öðrum aftur fyrir sig í anda skapandi eyðileggingar Schumpeters. Sum koma inn með nýtt nafn og kennitölu en byggja á gömlum og góðum fyrirtækjum sem hafa sameinast eða verið tekin yfir og umbreytt.
Hástökkvari síðasta árs er Fly Play sem flýgur upp um 285 sæti og tyllir sér í 64. sæti. Önnur fyrirtæki endurspegla árangursríka nýsköpun og viðskiptavæðingu tækni og vísinda. Controlant stekkur þannig í 66. sæti upp um 50 á milli ára og Alvotech bankar á lista 100 stærstu, hækkar um 66 sæti og situr í 112. sæti.
Kerecis er á hælum þessa beggja og situr í sæti 122 en hækkar um 83 á milli ára. Öll stefna þau ofar á listann sem nýir fánaberar þess sem Marel og Össur hafa þegar áorkað.
En þó margir fljúgi upp og niður listann í stórum stökkum á milli ára er meðal sætisbreytingin um 8 sæti á milli ára fyrir 100 stærstu en 22 sæti fyrir öll hin. Það er með öðrum orðum meiri hreyfing á milli ára neðst á listanum en á toppnum.
Hægt er að lesa grein Ólafs í heild sinni í bókinni 500 stærstu sem kom út 6. desember. Hægt er að kaupa bókina hér.