Gunnar Einarsson, fyrrverandi bæjarstjóri Garðabæjar, er launahæstur sveitarstjórnarmanna. Launatekjur hans á síðasta ári námu 3,2 milljónum króna á mánuði.
Í öðru sæti listans er borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson. Hann var einnig með 3,2 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi í Garðabæ.
Um 20 sveitarstjórnarmenn eru með yfir 2 milljónir króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæstu sveitarstjórnarmennirnir:
- Gunnar Einarsson, fv. bæjarstj. Garðabæjar - 3,2 milljónir króna
- Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri - 3,2 milljónir
- Gunnar Valur Gíslason, bæjarfulltrúi Garðabæ - 2,9 milljónir
- Halla Björk Reynisdóttir, fors. bæjarstj. Akureyri - 2,6 milljónir
- Magnús Örn Guðmundsson, fv. forseti bæjarstj. Seltjarnarnes - 2,6 milljónir
- Jón Björn Hákonarson, fors. bæjarstj. Fjarðabyggð - 2,5 milljónir
- Sævar Freyr Þráinsson, bæjarstj. Akraness - 2,4 milljónir
- Aldís Hafsteinsdóttir, fv. bæjarstj. í Hveragerði - 2,3 milljónir
- Ármann Kristinn Ólafsson, fv. bæjarstj. Kópavogi - 2,3 milljónir
- Haraldur Sverrisson, fv. bæjarstj. Mosfellsbæjar - 2,3 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar kom út í morgun. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði