Tvö fyrirtæki bera höfuð og herðar yfir aðrar vélsmiðjur á Íslandi samkvæmt 500 stærstu tölublaði Frjálsrar verslunar.
Þetta eru Héðinn og HD en tekjur þeirra beggja námu á bilinu 5,2-5,3 milljörðum króna á síðasta ári. Þriðja stærsta fyrirtækið, Stjörnublikk, var með 2,3 milljarða í tekjur. Héðinn var mestan hagnað í fyrra, 292 milljónir og þrefaldaðist hann frá fyrra ári.
Um 138% tekjuaukning
Vélsmiðjur hafa allar verið reknar með hagnaði á síðustu árum. Leita þarf aftur til ársins 2019 til að finna taprekstur en þá skiluðu 3 félög tapi. Það voru Héðinn, Járn og Blikk og Geislatækni. Töluverður breytileiki hefur verið í tekjuvexti félaganna á síðustu árum en frá 2019 jukust tekjurnar mest hjá HD sem fór úr því að vera fjórða stærsta fyrirtækið yfir í það næststærsta. Tekjurnar hjá HD jukust um 138% en næstmesti tekjuaukinn var hjá Járn og Blikk sem jók tekjur sínar um 121%. Minnsti tekjuaukinn var hjá Ísloft blikk- og stálsmiðja.
Hægt er að lesa nánar um vélsmiðjur í bókinni 500 stærstu sem kom út 6. desember. Hægt er að kaupa bókina hér.