Hallur Andrés Baldursson, stjórnarformaður ENNEMM, er launahæstur á lista yfir laun auglýsingafólks. Launatekjur hans á síðasta ári námu 2,8 milljónum króna á mánuði.
Í öðru sæti listans er Sveinn Líndal Jóhannsson sem starfar á sömu auglýsingastofu. Hann var með 2,4 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi hjá AtonJL, með 2 milljónir króna á mánuði.
26 á listanum eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæsta auglýsingafólkið:
- Hallur Andrés Baldursson, stj.form. ENNEMM - 2,8 milljónir króna
- Sveinn Líndal Jóhannsson, tengill ENNEMM - 2,4 milljónir
- Huginn Freyr Þorsteinsson, ráðgjafi Aton.JL - 2 milljónir
- Hjörvar Harðarson, hönnunarstj. ENNEMM - 1,8 milljónir
- Björgvin Guðmundsson, almannatengill KOM - 1,7 milljónir
- Leifur B. Dagfinnsson, True North - 1,6 milljónir
- Jón Árnason, Hugmyndastj. ENNEMM - 1,5 milljónir
- Bragi Valdimar Skúlason, Brandenburg - 1,5 milljónir
- Hörður Harðarson, fv. samskipta- og markaðsstj. Sýn - 1,5 milljónir
- Hafsteinn Sv. Hafsteinsson, tengill ENNEMM - 1,4 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði