Taugaskurðlæknirinn Bjarni Torfason er launahæstur á lista yfir tekjur lækna og tannlækna. Launatekjur hans á síðasta ári námu 7,8 milljónum króna á mánuði.
Í öðru sæti listans er Ágúst Oddsson, heimilislæknir á Hvammstanga, sem var með 5,9 milljónir króna í mánaðartekjur á síðasta ári. Í þriðja sæti er svo Ásbjörn Jónsson, röntgenlæknir og dósent við Háskóla Íslands, með 5,1 milljón króna á mánuði.
Allir á listanum eru með yfir eina milljón króna í launatekjur á mánuði. Þetta er meðal þess sem finna má í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem komið er í verslanir, en blaðið hefur að geyma upplýsingar um tekjur um 4.000 Íslendinga.
Tíu tekjuhæstu læknar og tannlæknar:
- Bjarni Torfason, taugaskurðlæknir - 7,8 milljónir króna
- Ágúst Oddsson, heimilislæknir, Hvammstanga - 5,9 milljónir
- Ásbjörn Jónsson, röntgenl. dósent við HÍ - 5,1 milljón
- Ásgeir Böðvarsson, lyflæknir, yfirl. Húsavík - 4,9 milljónir
- Jón H H Sen, skurðlæknir - 4,3 milljónir
- Robert Maciej Wojciechowski, sérfr. í svæfingal. HSA - 3,9 milljónir
- Sigurgeir Trausti Höskuldsson, læknir Heilbrst. Suðurnesj. - 3,7 milljónir
- Þorsteinn Bergmann, læknir - 3,7 milljónir
- Þórir Björn Kolbeinsson, heimilislæknir, Hellu - 3,6 milljónir
- Fjölnir Freyr Guðmundsson, frkvstj. lækninga HSS - 3,6 milljónir
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak hér.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði