Á föstudaginn opnar einkasýning Hallgríms Árnasonar, Opnar skjöldur, í Listvali að Hverfisgötu 4.

Hallgrímur býr og starfar í Vínarborg en hann stundaði nám við Listaakademíuna í Vín, meðal annars undir leiðsögn þýska listamannsins Daniel Richter.

Í febrúar síðastliðnum opnaði hann sína fyrstu einkasýningu, Fehlerhaft [kœtlʏð], í Vínarborg. Sýningin Opnar skjöldur er hans fyrsta sýning á Íslandi.

Verkin á sýningunni fjalla um tilfinningalega afstöðu og viðbrögð Hallgríms við stað og stund og sýna áköf form, liti og línur spretta fram og breiða úr sér. Orka, hvatvísi og undarlegt jafnvægi kyrrðar og óreiðu einkenna myndflöt Hallgríms.

Hann segir í tilkynningu að hann muni leyfa því óvænta að taka völdin. Eitt hugskot verður að hreyfingu, athöfn að hugskoti, eitt leiðir af öðru. Gestir munu fá að horfa inn í fjölskrúðugan hugarheim listamannsins, afstæða tilveru, og láta hugann reika, rétt á meðan þeir gleyma eigin stað og stund.