Hannesarholt opnar á ný eftir sumarleyfi á morgun, 10. ágúst, með myndlistarsýningu Hjartar Hjartarsonar sem nefnist „2023 Nýjar myndir“.

Þessi einkasýning endurspeglar margar stórar upplifanir listamannsins á árinu 2023 og er sýnd sem eins konar dagbók.

Í byrjun árs fór Hjörtur í fyrsta sinn til Afríku, eitthvað sem hann hafði dreymt um síðan hann var ungur drengur. Í safaríferðinni í Masai Mara-þjóðgarðinum í Keníu varð hann fyrir miklum áhrifum af fegurð sléttanna, víðáttunnar, birtunnar, trjágróðursins og rauðbrúna jarðvegsins í Afríku. Allt þetta smýgur síðan hljóðlega inn í listsköpun hans á árinu.

Hann fór líka síðastliðinn vetur á sýninguna „Monet og Mitchell“ í Louis Vuitton safninu í París sem hafði mjög sterk áhrif á hann.

Hjörtur lítur á list sína og þá list sem hann sækir í að hún sé eins og blóm til áhorfandans og að áhorfandinn með upplifun sinni sé eins og býflugan sem fær hunang sitt að launum fyrir huga og sál.

Þetta ár hefur jógaiðkun hans líka aukist og hefur tónheilunin í tímunum þar gefið honum aukið rými fyrir listsköpunina.

Samkvæmt tilkynningu verður sýningin opin í Hannesarholti frá 10. – 31. ágúst.