Forsvarsmenn leikjafyrirtækisins Solid Clouds og tölvunarfræðideildar HR skrifuðu nýverið undir viljayfirlýsingu um samstarf á sviði gervigreindar í tölvuleikjum. Samstarfið miðar að því að nýta gervigreindartækni til að gera leikinn enn áhugaverðari fyrir notendur.

Solid Clouds vinnur að gerð Starborne sem er þrívíður herkænskuleikur í geimnum sem er spilaður í rauntíma af þúsundum spilara á stóru stöðukorti gegnum tölvu og snjalltæki. Gervigreind verður notuð í leiknum til að greina betur hegðun notenda leiksins svo og til að gæða tölvustýrða spilara auknum mannlegum eiginleikum. Leikurinn verður gefinn út á næsta ári.

Stefán Gunnarsson hjá Solid Clouds:

„Ég bind miklar vonir við þetta samstarf, en innan gervigreindarseturs HR er mikil þekking á gervigreind og leikjagerð, sem mun nýtast okkur við að gera Starborne leikinn enn betri. Hugmyndin að Solid Clouds varð til í HR og það er okkur mjög mikils virði að hafa aðgang að sérfræðingum háskólans á þessu sviði.“ segir Stefán Gunnarsson framkvæmdastjóri Solid Clouds.

Gísli Hjálmtýsson í HR:

„Við erum mjög spennt fyrir því að að geta stutt við sprotafyrirtæki eins og Solid Clouds, enda mikil þekking á tölvuleikjaþróun á gervigreindarsetri skólans.

Á sama tíma og við eigum von á að geta veitt Solid Clouds margvíslega aðstoð og stuðning, væntum við verulegs ávinnings í rannsóknum við að sjá reynslu og upplifun spilara í leiknum,“ segir Gísli Hjálmtýsson forseti tölvunarfræðideildar Háskólans í Reykjavík.