Andstæðingur Sunnu heitir Mallory Martin. Martin þessi er 23 ára Bandaríkjamær sem hefur líkt og Sunna barist og sigrað einn atvinnubardaga til þessa. Bardagakvöldið verður sýnt í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og er þriðji bardagi kvöldsins. Útsending hefst klukkan 12 á miðnætti og má gera ráð fyrir að Sunna stígi í búrið lauslega fyrir klukkan eitt.

Ferðalagið Sunna og föruneyti hennar úr Mjölni eru núna komin til Kansas City eftir ansi skrautlegt ferðalag sem hófst á aðfararnótt sunnudags en lauk ekki fyrr en síðdegis á mánudag. Flugið tafðist og ferðaáætlun riðlaðist. Við tók röð atvika og og óhappa, aflýstra flugferða og annarra óþæginda. Sunna lýsir ferðinni svona; “Síðustu vikuna fyrir bardaga þá er ég annarsvegar að drekka afar mikið af vatni með tilheyrandi klósettferðum og hinsvegar er ég á þaulskipulögðu og kolvetnissnauðu mataræði. Þetta er allt saman í fínasta lagi ef ég er með matarskammtana mína klára og baðherbergi í seilingarfjarlægð. Að fara í langt ferðalag er talsverð áskorun í þessu ljósi og þegar ferðaplanið byrjaði að riðlast þá hafði það sín áhrif. Flugið frá Keflavík tafðist um 6 klukkutíma. Þannig hófst ferðin. Flugvélin var í þokkabót stappfull og ég var í miðjusæti á milli tveggja eldri kvenna, sem þó reyndar afar yndælar. Stuttu eftir að flugið hófst þá sofnaði konan sem var í gangsætinu og þar sem ég þurfti að komast á klósettið á kortersfresti þá var smá bras að klifra yfir hana og passa að hún vaknaði ekki. Þetta slapp nú til án teljandi vandræða en þaðan fór ferðin að súrna. Þegar við komum til New York þá vorum við búin að missa af tengifluginu okkar og við þurftum að fara yfir á annan flugvöll til að ná því flugi sem okkur var úthlutað í staðinn. Það tók sinn tíma og þegar við komum loksins þangað þá var okkur tilkynnt að fluginu hefði verið aflýst og að við þyrftum að finna okkur gistirými einhversstaðar því það yrði ekki yrði flogið fyrr en morguninn eftir.

Það sem drepur mann ekki styrkir mann

Á þessum tímapunkti var ég búin að klára alla matarskammtana sem ég hafði útbúið fyrir ferðalagið og var orðin verulega svöng og þónokkuð frústreruð. Það var ekki auðvelt að finna matsölustað sem bauð máltíðir sem samræmdust mínu prógrammi. Allt sem í boði var, var meira og minna saltað, sykrað og stappfullt af óhollustu. Okkur tókst þó á endanum að finna salatbar þar sem einnig voru boðnir heitir réttir. Ég gat samið við kokkinn þar um að græja fyrir mig þrjú egg og svo borðaði ég bara vel af káli með því. Við það varð allt betra. Eitt og annað misskemmtilegt gekk á í kjölfarið en það sem máli skiptir er að við erum núna komin til Kansas. Þetta var 39 klukkustunda ferðalag sem núna er komið í baksýnisspegilinn og hinn almenni lokaundirbúningur fyrir bardagann er því loksins hafinn.
Það sem drepur mann ekki styrkir mann og ég er er ekki búin að ferðast alla þessa vegalengd með öllum þessum flækjum til neins annars en að klára ætlunarverk mitt.” Veðrið í Kansasborg er milt. Sólin skín og allar aðstæður eru með besta móti. Sunna bætir við; “Það er svo gott að vera komin hingað aftur. Þetta er ekki nýtt fyrir mér eins og það var seinast. Ég veit hvernig allt snýr hérna og er því bara strax búin að aðlagast. Veðrið er eins og á góðum íslenskum sumardegi og ég er virkilega vel stemmd fyrir því sem framundan er.

Fjölmiðladagurinn áreynslumeiri en bardaginn

Bardagavikan (Fight week) Gjarnan er talað um síðustu dagana í aðdraganda bardagakvöldsins sem “fight week”. Þá er heilmikil dagskrá, samskipti við fjölmiðla og aðdáendur, vigtun og sitthvað fleira. Í dag er fjölmiðladagur. “Þessi dagur er að vissu leyti áreynslumeiri en sjálfur bardaginn.”, segir Sunna og hlær og bætir við; “Ég er svo miklu betur undirbúin í að fara inn í búr og berjast heldur en að pósa, tala og brosa fyrir framan myndavélina en ég veit vel að þetta er ekki síður mikilvægur hluti af starfinu mínu. Ég var svakalega stressuð á fjölmiðladeginum í fyrra en þá var ég náttúrulega líka að gera þetta í fyrsta skipti. Pressan sem fylgdi því að vera umkringd bardagakonum sem ég hef litið upp til í mörg ár, vera innan um allan þennan fjölda af fjölmiðlafólki og með hugann við að koma vel fyrir og tala skýrt reyndi talsvert á þó svo að dagurinn hafi náttúrulega verið mjög skemmtilegur. Þetta verður miklu auðveldara núna því ég er reynslunni ríkari.”Á morgun fer fram vigtun. Sunna berst í strávigt sem er -52 kílóa flokkur. Skekkjumörk upp á 600 grömm eru í boði þannig að það eina sem huga þarf að er að Sunna sé undir 52,6 kílóum á vigtinni þegar vigtunin fer fram.

Óttast andstæðinginn ekki neitt

“Ég er á undan áætlun með þyngdina og mun ekki þurfa að hafa mikið fyrir því að ná réttri vigt héðan. Ég byrjaði fyrir 5 vikum að hreinsa til í mataræðinu og vinna mig markvisst niður að vigtinni sem ég þarf að ná. Þetta er því búið að vera mjög milt og viðráðanlegt. Það er ekkert óheilbrigði í gangi og “köttið” eins og við köllum það í þessum bransa er búið að ganga fullkomlega. Ég gerði þetta á sama hátt seinast, líkaminn og hausinn þekkja þetta fyrir vikið og þess vegna er þetta búið að ganga enn betur núna.”, segir Sunna. Um kvöldið á vigtunardegi fer fram viðburður þar sem Sunna hittir andstæðing sinn formlega í fyrsta sinn. Þær munu stíga saman á svið og fara upp á móti hvor annarri. “Ég er mjög ánægð með minn undirbúning fyrir bardagann og ég óttast andstæðing minn ekki neitt. Það verður því gaman að líta hana augliti til auglitis og   finna hvort það sé gagnkvæmt.”, segir Sunna og hlær.