Hinn nýi smart #1 vann Gullna stýrið í flokknum „Besti bíllinn undir 50.0000 evrum“ en verðlaunin eru ein eftirsóttustu bílaverðlaun Þýskalands.
Verðlaunin voru nú veitt í 47. sinn í höfuðstöðvum Axel Springer Verlag í Berlín en frá árinu 1976 hafa tímaritið AUTO BILD og dagblaðið BILD am Sonntag árlega heiðrað bestu bílana í Þýskalandi.
Verðlaunin eru veitt af lesendum AUTO BILD og sérfræðidómnefnd: Lesendur velja sína eftirlætisbíla í ákveðnum flokkum.
Bílarnir eru síðan prófaðir og metnir af frægum einstaklingum, tæknimönnum, kappakstursmönnum og sérfræðingum á borð við Robin Hornig, ritstjóra AUTO BILD og Robert Schneider, ritstjóra BILD.
Hver sérfræðingur metur mismunandi þætti bílanna út frá sinni þekkingu og áherslum sem tryggir hlutlægt mat.
Það sem gerir sigur Smart #1 sérstakan er að rafbíll hafi staðið sig betur en hybrid-bílar og bílar með brunahreyfla.
Smart #1 býður upp á mikla drægni eða allt að 440 km skv. WLTP-prófun. Hann er töluvert frábrugðinn fyrri smart-útfærslum þar sem hann rúmar heila fjölskyldu.
Bíllinn er 4,27 m að lengd og er því nægilega stór fyrir fimm manna fjölskyldu í fríi eða til að geyma alla innkaupapokana án þess að bíllinn tapi hentugleika sínum fyrir innanbæjarakstur.
Einnig er hægt að hlaða rafhlöðuna í smart #1 úr 10 og upp í 80% á aðeins 30 mínútum með 150 kW jafnstraumi.
Boðið er upp á nokkrar vörulínur af hverri útfærslu. Smart #1 Pro+ eru grunnútfærsla. Smart #1 Pules býður upp á aukna drægni og allan fáanlegan búnað og er einnig fjórhjóladrifinn.
Þar á eftir kemur smart #1 BRABUS sem er áframhald af vel heppnuðu samstarfi smart og bílafyrirtækisins BRABUS og er sérstaklega ætlaður ökumönnum sem kjósa sportlegan akstur. Allar vörulínur bjóða upp á heillandi eiginleika á borð við lyklalausa opnun og akstursaðstoðarkerfi. Fjölbreytt litaúrval gefur viðskiptavinum tækifæri til að tjá sig.