Alexandra Mjöll Jóhönnudóttir hefur tekið við stöðu sérfræðings í upplifun viðskiptavina hjá Póstinum en hún mun bera ábyrgð á samræmdri upplifun viðskiptavina og nálgun í gegnum sölu, þjónustu og markaðsmál.

„Það hefur verið áhugavert að fylgjast með stöðugri framþróun í þjónustu við viðskiptavini á síðustu árum þar sem Pósturinn hefur haft viðskiptavininn í brennidepli í allri sinni starfsemi. Pósturinn lítur til þess að bæta upplifun viðskiptavina á öllum snertiflötum með hagnýtingu gagna og þróun stafrænna lausna og það er virkilega spennandi að fá að vera með á þeirri vegferð þar sem Pósturinn á mikið inni,“ segir Alexandra.

Hún starfaði síðast hjá Nostra og gegndi þar stöðu fjármálastjóra og áður sölu- og markaðsstjóra. Alexandra er með B.Sc. í viðskiptafræði með áherslu á verkefnastjórnun og vinnur nú að því að ljúka meistaragráðu í upplýsingastjórnun þar sem áhersla er á samspil viðskipta og gagna- og hugbúnaðarstjórnunar.

Ósk Heiða Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri viðskiptavina hjá Póstinum segir mikinn feng í að fá Alexöndru inn í hópinn. „Ég er alsæl með að fá svona framúrskarandi fólk í mitt lið. Alexandra er með mikla sérfræðiþekkingu og það eru forréttindi að vera í teymi með fólki sem hefur einlægan áhuga á upplifun og þjónustu við viðskiptavini. Hér er reynd kona á ferð sem veigrar sér ekki við að ganga hratt og vel til verka,“ segir Ósk.