Hildur Margrét Jóhannsdóttir hagfræðingur hefur verið ráðin til starfa í Hagfræðideild Landsbankans. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.
Frá árinu 2020 var hún fréttamaður hjá Ríkisútvarpinu. Áður starfaði Hildur Margrét tímabundið í utanríkisráðuneytinu og í sendiráði Íslands í London og þar áður í hagdeild Alþýðusambands Íslands.
Hildur Margrét lauk B.A.-gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands árið 2016 og M.Sc.-gráðu í alþjóða- og stjórnmálahagfræði frá London School of Economics árið 2017.