Ísold Einarsdóttir er nýr markaðsstjóri upplýsingatækifyrirtækisins OK en hún hefur mikla reynslu af sölumálum og markaðssetningu á upplýsingatæknilausnum.
Hún er með BS-gráðu í viðskiptafræði og MS-gráðu í markaðsfræði og alþjóðaviðskiptum frá Háskóla Íslands.
„Við erum afar ánægð með að fá Ísold til að taka við stöðu markaðsstjóra hjá OK. Hún hefur sýnt mikla hæfni og þekkingu í gegnum störf sín hjá fyrirtækinu og hefur verið lykilaðili í að byggja upp og styrkja vörumerkið okkar og styðja við sölustarfið. Með reynslu hennar og metnaði erum við sannfærð um að hún muni leiða markaðsstarfið af festu og árangri,“ segir Gunnar Zoëga, forstjóri OK.
Ísold hefur starfað hjá OK síðan 2019 þar sem hún hóf feril sinn sem sölustjóri.