Sigurjón Örn Ólafsson hefur tekið við sem framkvæmdastjóri þjónustusviðs Kletts. Hann tekur við af Sveini Símonarsyni, sem hefur stýrt þjónustusviðinu frá stofnun félagsins.
Klettur tilheyrir samstæðu Styrkás og sérhæfir sig í sölu og þjónustu á tækjum og búnaði til fyrirtækja. Félagið starfar á fyrirtækjamarkaði og er umboðsaðili fyrir leiðandi vörumerki í tækjum og búnaði, svo sem Caterpillar og Scania.
Sigurjón hefur áralanga reynslu hjá Kletti og hefur gegnt lykilhlutverki í vexti innan þjónustudeildar Kletts sem þjónustustjóri undanfarin ár. Hann býr yfir víðtækri reynslu af þjónustustjórnun og leiðtogahlutverki.
„Ég er spenntur fyrir því að fá að leiða þjónustusvið Kletts. Styrkleikar Kletts liggja í metnaðarfullu og hæfileikaríku starfsfólki sem býr yfir áralangri reynslu og mikilli sérþekkingu. Við ætlum okkur að halda áfram að veita viðskiptavinum okkar trausta og góða þjónustu,“ segir Sigurjón Örn Ólafsson.
Samhliða breytingunum hefur Andreas Boysen verið ráðinn sem nýr þjónustustjóri. Andreas Boysen kemur frá Norðuráli og býr yfir mikilli reynslu af þjónustustjórnun og innleiðingu tæknilegra umbóta.