Rafmyntakauphöllin Coinbase skilaði tæplega 1,1 milljarðs dala tapi á öðrum ársfjórðungi, eða sem nemur nærri 150 milljörðum króna. Til samanburðar hagnaðist félagið um 1,61 milljarð dala á sama tímabili í fyrra. Heildarvelta viðskipta á öðrum ársfjórðungi nam 217 milljörðum dala á fjórðungnum, en á sama tímabili ári áður nam veltan 462 milljörðum dala.

Reuters greinir frá þessu og segir þennan neikvæða viðsnúning milli ára fyrst og fremst tilkomin þar sem fjárfestar séu nú tregari til en að fjárfesta í áhættusömum eignarflokkum en árið áður. Gengi hlutabréfa Coinbase, sem er ein stærsta rafmyntakauphöll heims, hefur fallið um rúmlega 60% það sem af er ári.

Eins og Viðskiptablaðið sagði frá í júní neyddist Coinbase til að segja upp nærri 1.100 manns, eða um fimmtungi starfsmanna, vegna samdráttar á rafmyntamarkaði. Coinbase tapaði 430 milljónum dala á fyrsta ársfjórðungi.