Alvotech hefur gengið til samstarfs við lyfjafyrirtækið Kashiv Biosciences LLC um þróun og markaðssetningu á AVT23, sem er fyrirhuguð líftæknilyfjahliðstæða við Xolair (omalizumab). Klínísk rannsókn á AVT23 í sjúklingum stendur nú yfir.
Í tilkynningu segir að samningur félaganna muni ná til 27 ríkja Evrópusambandsins, Bretlands, Ástralíu, Kanada og Nýja Sjálands. Samkvæmt samningnum fær Alvotech einkarétt til markaðssetningar AVT23, sem verður þróað og framleitt af Kashiv en Kashiv á rétt á fyrirframgreiðslu, áfangagreiðslum og hagnaðartengdum greiðslum.
„Það er mikil ánægja að ganga til þessa samstarfs um þróun og markaðssetningu omalizumab. Alvotech hefur byggt upp afburða þekkingu og aðstöðu, en eins og þessi samningur sýnir getum við kosið að sækja aukna markaðshlutdeild með því að þróa og framleiða lyf að öllu leyti innanhúss eða í samstarfi við aðra. Í þessu verkefni nýtum við reynslu Alvotech af því að tryggja markaðsaðgengi og samninga við öfluga söluaðila á öllum helstu mörkuðum,“ sagði Róbert Wessman, stjórnarformaður og forstjóri Alvotech.
Omalizumab er einstofna mannaaðlagað mótefni sem binst sértækt við ónæmisglóbúlín E. Xolair, sem inniheldur omalizumab, er gefið við þrálátum ofnæmisastma, langvinnri nef- og skútabólgu með sepageri í nefi (CRSwNP) og langvinnum ofsakláða af óþekktum toga.
Tekjur af sölu Xolair á síðustu tólf mánuðum fram til 30. júní sl. námu um 3,7 milljörðum Bandaríkjadala.
„Við fögnum þessum samningi við Alvotech, um markaðssetningu á omalizumab-hliðstæðunni. Með þessum samningi heldur Kashiv áfram að byggja á reynslu við þróun og framleiðslu hágæða líftæknilyfjahliðstæða fyrir samstarfsaðila um allan heim. Við væntum einnig góðrar þátttöku sjúklinga í klínískri rannsókn sem var nýlega hrundið af stokkunum og að geta senn aukið aðgengi að þessu mikilvæga meðferðarúrræði,“ sagði Dr. Sandeep Gupta, forstjóri Kashiv.