Málmleitarfélagið Amaroq, sem heldur á víðtækum námuvinnsluréttindum í Grænlandi, hefur fundið umtalsvert magn nikkels og kopars við leit í Stendalen í Suður-Grænlandi.
Samkvæmt Kauphallartilkynningu er um að ræða 140 m þykkt lag af því sem er kallað „disseminated“ kvikusúlfíð sem inniheldur kopar, nikkel og kóbalt í gríðarlega stóru innskoti í tilraunaborholu í Stendalen.
„Fundur á borð við þann sem átti sér stað í Stendalen er afrakstur margra ára vinnu jarðfræðiteymis Amaroq og ber vitni um þá miklu trú sem við höfum haft á þeim tækifærum sem Suður-Grænland býður upp á. Mikilvægi þess að finna kopar og nikkel, sem eru afar nauðsynlegir málmar fyrir orkuskipti, í landi sem er jafn vel staðsett, verður ekki undirstrikað nægilega vel. Þessar fyrstu niðurstöður gera það að verkum að við getum nú sett enn meiri kraft í verkefnið, sem nú þegar er að fullu fjármagnað næstu ár,“ segir Eldur Ólafsson forstjóri Amaroq.
Samkvæmt félaginu hefur súlfíðahlutfallið hingað til verið í lægri kantinum og dreift. Amaroq mun nota niðurstöðurnar til að sækja enn frekar í þann hluta sem búist er við að sé þéttara.
„Jarðfræðirannsóknir sýna fram á hvar aðalsvæðið er og mun fyrirtækið einbeita sér að því á árinu. Mikilvægt er að horfa til þess að samsetningin, svo sem magn og áferð, bendi til að hún sé sambærileg við bestu nikkel-koparnámur í heiminum. Magnið af nikkeli, kopari og kóbalti innan súlfíðanna virðist gríðarlega hátt eða um 3-5% nikkel/kopar sem sýnir gæði Stendalen-svæðisins,“ segir í Kauphallartilkynningu.
Tilraunaborun Amaroq sem hófst í fyrra var sú fyrsta á svæði sem er um 6 km í þvermál og því er mögulegt að í Stendalen finnist fjölmörg önnur verðmæt málmgrýtissvæði.
Félagið segir að fundurinn staðfesti enn þau miklu tækifæri sem Suður-Grænland bjóði upp á.
„Jarðfræðiteymi okkar lagði fram tímamótaspár í kjölfar nákvæmra rannsókna á Suður-Grænlandi og ég er afar þakklátur stjórnum Amaroq og samstarfsfélagsins Gardaq JV fyrir að hafa trú á rannsóknum okkar og heimila okkur gera þær. Niðurstöðurnar fara fram úr okkar björtustu vonum. Jafnvel þótt málmhlutfallið sé tiltölulega lágt eru eiginleikar bergsins þannig að útlit er fyrir að þarna gæti fundist mjög hátt hlutfall af nikkeli, kopari og kóbalti sem líklegt er að sverji sig í ætt við stærstu hágæða nikkel-koparnámur líkt og í Talnakh (Noril’sk), Sudbury og Voisey’s Bay. Að auki benda niðurstöður til að hágæða málmar finnist á svæðinu, sem er meginmarkmið rannsókna ársins. Þetta er aðeins upphafið að því sem koma skal í Stendalen, fram undan eru frekari jarðfræðirannsóknir og tilraunaboranir. Góður árangur verkefnisins eykur verulega líkurnar á að finna fleiri tegundir verðmætra málma á svæðum Amaroq og staðfestir þau miklu tækifæri sem eru á Suður-Grænlandi,” segir James Gilbertson, aðstoðarforstjóri rannsókna hjá Amaroq.