Arion banki hefur ákveðið að hætta að taka við seðlum í fjölmörgum myntum og mun aðeins taka við og selja erlenda seðla í fjórum myntum - breskum pundum, Bandaríkjadollar, pólskum zloty og evrum – frá og með 15. mars næstkomandi. Bankinn segir að nær öll gjaldeyrissala síðustu missera hafi farið fram í þessum fjórum myntum.

Arion mun því um miðjan næsta mánuð hætta að selja og taka við seðlum í eftirfarandi myntum; áströlskum og kanadískum dollurum, dönskum, sænskum og norskum krónum, svissneskum frönkum og japönskum jenum.

„Ástæða breytinganna er sú að gjaldeyrissala hefur farið mjög minnkandi undanfarin ár, fyrst og fremst með tilkomu tækninýjunga en einnig vegna þrengri skorða vegna peningaþvættisreglna hérlendis sem og erlendis,“ segir í tilkynningu á vef bankans.

Arion varar þá viðskiptavini sem eiga seðla í þeim myntum sem bankinn hyggst hætta að taka við og vilja skipta yfir í íslenskar krónur í útibúi Arion að gera það í síðasta lagi 15. mars. Nauðsynlegt sé að eiga innlánsreikning hjá bankanum og hafa lokið áreiðanleikakönnun.

Arion áréttar að framangreindar breytinagar feli ekki í sér nokkra breytingu á úrvali gjaldeyrisreikninga bankans.