Aðalfundur Viðskiptaráðs Íslands verður haldinn eftir tæpar tvær vikur. Ari Fenger, forstjóri 1912, lætur þá af störfum sem stjórnarformaður ráðsins. Hann var fyrst kjörinn formaður árið 2020 og svo endurkjörinn tveimur árum síðar. Hann hefur því gegnt formennsku í fjögur er en samkvæmt lögum ráðsins má formaður einungis sitja í fjögur ár í senn.
Við formennsku í ráðinu tekur Andri Þór Guðmundsson, forstjóri Ölgerðarinnar. Framboðsfrestur rann út 17. janúar og er Andri Þór eini frambjóðandinn og því sjálfkjörinn til næstu tveggja ára. Í lögum ráðsins segir reyndar að ef einungis eitt framboð til formanns komi fram skuli engu að síður fara fram kosning. Þrátt fyrir þetta skiptir atkvæðamagnið í kjörinu ekki máli. Sé einstaklingur einn í kjöri er hann alltaf sjálfkjörinn.
Þessir eru í kosningabaráttu
Í stjórn Viðskiptaráðs sitja 38 einstaklingar, formaður félagsins og 37 aðrir. Kosning til stjórnar er óbundin og eru því allir skuldlausir félagsmenn kjörgengir. Hins vegar geta félagsmenn gefið sérstaklega kost á sér til stjórnarsetu og fá aðildarfélagar með kosningarétt ábendingarlista með þeim nöfnum.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði