Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri og Rannveig Sigurðardóttir, varaseðlabankastjóri peningastefnu mæta á opinn fund efnahags og viðskiptanefndar Alþingis kl 9:10.
Fundarefnið er skýrsla peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands fyrir seinni hluta ársins 2023.
Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum síðasta miðvikudag. Samkvæmt skýrslu nefndarinnar eru áhrif peningastefnunnar að koma æ skýrar fram.
Raunvextir hafa hækkað og verðbólga hjaðnað nokkuð frá nóvemberfundi nefndarinnar. Undirliggjandi verðbólga hefur einnig minnkað.
Hægt er að horfa á fundinn hér.