Birgir Jónsson, forstjóri Play, og stjórn flugfélagsins gerðu í dag samkomulag um starfslok hans, að því er segir í tilkynningu til Kauphallarinnar. Einar Örn Ólafsson, núverandi stjórnarformaður félagsins, tekur við sem forstjóri Play.

Forstjóraskiptin fara fram um sama leyti og Play er að leggja lokahönd á yfir 4 milljarða króna hlutafjáraukningu ásamt því að flugfélagið hyggst færa sig af First North-markaðnum yfir á aðalmarkað Kauphallarinnar.

Birgir, sem var ráðinn forstjóri Play í apríl 2021, mun starfa áfram hjá félaginu fram til 2. apríl næstkomandi og mun í framhaldinu verða félaginu til ráðgjafar næstu mánuði.

„Það hefur verið ævintýri líkast að taka þátt í uppbyggingu Play. Á tiltölulega skömmum tíma er orðið til öflugt íslenskt lággjaldaflugfélag með framúrskarandi vöru og þjónustu og bjarta framtíð. Virk samkeppni í flugi sem skilar sér í lægri fargjöldum, fjölbreyttum áfangastöðum og verðmætum erlendum gestum er sérstaklega mikilvæg fyrir eyju eins og okkar. Slík samkeppni varðar hagsmuni allra Íslendinga,“ segir Birgir.

„Ég geng þess vegna ákaflega stoltur frá borði. Play hefur nú slitið barnsskónum og er orðið þroskað flugfélag. Ég hef átt gott og náið samband við Einar og félagið er í góðum höndum hjá honum. Ég hlakka til að sjá félagið blómstra undir hans forystu. Ég vil þakka viðskiptavinum og samstarfsaðilum fyrir einkar ánægjulegt samstarf. Ég mun svo kveðja stórkostlegan hóp starfsmanna á næstu dögum.”

Einar: Play á tímamótum

Einar Örn er einn stærsti einstaki hluthafi félagsins og stjórnarformaður þess síðan í apríl 2021. Þar sem tekur nú við forstjórastarfinu hefur hann hefur dregið framboð sitt til stjórnar til baka en stjórnarkjör fer fram á aðalfundi félagsins þann 21. mars næstkomandi.

„Ég er fullur tilhlökkunar að takast á við þetta verkefni. Eftir kröftugt uppbyggingarstarf síðustu ára undir öflugri forystu Birgis er félagið á ákveðnum tímamótum. Sem stærsti einstaki hluthafi félagsins vil ég fylgja fjárfestingu minni eftir,“ segir Einar Örn.

„Ég þekki vel til starfsemi og starfsmanna Play og sé mörg tækifæri og spennandi viðfangsefni framundan í rekstrinum. Ég er þakklátur stjórn Play fyrir traustið og vil líka þakka Birgi sérstaklega fyrir framlag hans til Play og ánægjulegt og gott samstarf.”

Einar Örn hefur tekið þátt í rekstri ýmissa félaga bæði sem fjárfestir og stjórnandi. Hann er stjórnarformaður Terra hf. og var áður forstjóri Fjarðarlax og Skeljungs ásamt því að búa yfir starfsreynslu á fjármálamarkaði. Einar Örn útskrifaðist með MBA gráðu frá NYU, Stern School of Business árið 2003 og er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands.