Play flutti 56.601 farþega í maí sem eru 54% aukning frá aprílmánuði þegar flugfélagið flutti 36.669 farþega. Í tilkynningu bendir Play á að farþegafjöldinn í maí hafi verið nærri jafnmikill og í janúar, febrúar og mars samanlagt. Sætanýting í maí var um 70%. Flugfélagið hefur samið við Skeljung um olíuvarnir.

„Sætanýting er að styrkjast verulega og farþegafjöldi mun aukast á næstu mánuðum og bókunarstaðan inn í sumarið er sterk. Þessi jákvæða þróun helgast meðal annars af nýja tengiflugsleiðakerfinu þar sem félagið flytur nú farþega á milli Norður-Ameríku og Evrópu,“ segir í tilkynningu Play.

Fram kemur að heildarfjöldi sæta í sölu á öðrum ársfjórðungi verði 164% meiri en á fyrsta ársfjórðungi ársins. Flugfélagið væntir þess að aukin umsvif muni leiða til betri nýtingar á flugvélum og öðrum rekstrareiningum.

Sjá einnig: „Ætlum að eiga þann markað“

Þegar New York hefur bæst við leiðakerfið þann 9. júní, er starfsemi hafin á öllum áfangastöðum í tengiflugsáætluninni yfir Atlantshaf á þessu ári. Play mun þá fljúga á 26 áfangastaði. Í maí var átta áfangastöðum bætt við í Evrópu og Norður-Ameríku; Prag, Boston, Lissabon, Gautaborg, Brussel, Stafangur, Malaga og Þrándheimur. Í júní hefur Play flug til Palma de Mallorca, Bologna, Madrídar og New York.

Innleiðing á olíuvörnum hafin

Play hefur gert samkomulag við Skeljung um olíuvarnir. „Fyrsta varfærna skrefið hefur verið stigið í innleiðingu á stefnunni og fylgst verður áfram náið með sveiflum í efnahagsmálum í heiminum fyrir næstu skref,“ segir í tilkynningunni.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Maímánuður reynist flugfélögum oft nokkur áskorun, þar sem umsvif rekstrarins hafa yfirleitt aukist töluvert fyrir sumarið án þess þó að viðskiptin sem fylgja sumarleyfum séu farin að skila sér alveg. Þess vegna erum við sérstaklega ánægð að vera í góðri stöðu á flóknum tímapunkti. Sætanýtingin er sterk og farþegafjöldi eykst og eykst. Play heldur áfram að vaxa og styrkja stöðu sína á markaðnum. Til marks um það er farþegafjöldinn í maí. Sá mánuður einn og sér var stærri en allur fyrsti ársfjórðungur 2022.

Það er öflugt ár að baki. Fyrst var það ævintýri líkast að sjá tengiflugið smella saman. Nú erum við farin að sjá áhrif þess á reksturinn og við það bætast allir nýju evrópsku áfangastaðirnir. Við gerum ráð fyrir að næstu mánuðir verði gífurlega jákvæðir fyrir félagið og vöxturinn heldur áfram. Að fljúga til New York Stewart í vikunni markar tímamót enda verður þá öll starfsemin komin af stað í Bandaríkjunum þetta árið. Á næsta ári bætast fleiri áfangastaðir við. Sumarið er skemmtilegt hjá okkur. Það eru magnaðir fagmenn að ganga til liðs við okkur um þessar mundir og fyrir mig er það heiður á hverjum degi að fá að leiða þennan einstaka hóp.“