Íslenskir stjórnmálaflokkar fengu samtals úthlutað tæplega 10,6 milljörðum króna úr ríkissjóði, á verðlagi dagsins í dag, á tímabilinu 2010-2025. Sjálfstæðisflokkurinn hefur, þar til í síðustu alþingiskosningum, verið stærsti flokkur landsins á tímabilinu. Flokkurinn hefur fengið hæsta úthlutun úr ríkissjóði á tímabilinu, eða alls rétt rúmlega 2,6 milljarða króna á verðlagi dagsins í dag. Samfylkingin, sem er í dag stærsti flokkurinn á þingi, hefur fengið næst mest í sinn hlut, eða hátt í 1,7 milljarða króna.
Á ári hverju fá stjórnmálaflokkar úthlutun úr ríkissjóði, en kveðið er á um þetta í lögum um fjármál stjórnmálasamtaka og frambjóðenda og um upplýsingaskyldu þeirra. Greiðslur hvers árs eru samkvæmt ákvörðun fjárlaga hverju sinni. Til þess að eiga rétt á framlagi þarf stjórnmálaflokkur að hafa fengið að minnsta kosti einn mann kjörinn á þing eða náð að lágmarki 2,5% atkvæða. Framlagið skiptist svo hlutfallslega milli flokka eftir atkvæðamagni í nýjustu kosningum.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur fengið úthlutað 55% meira en Samfylkingin sem hefur eins og fyrr segir fengið næsthæstu úthlutunina á tímabilinu. Fast á hæla Samfylkingarinnar koma Vinstri græn með rúmlega 1,6 milljarða króna og Framsóknarflokkurinn með tæplega 1,6 milljarða. Vinstri græn munu þó ekki hljóta frekari framlög úr ríkissjóði á næstu fjórum árum þar sem flokkurinn beið afhroð í síðustu þingkosningum og náðu ekki einu sinni 2,5% markinu til að eiga rétt á framlagi.
Aðrir flokkar sem hafa setið á Alþingi á undanförnum árum hafa fengið nokkru lægri úthlutanir. Píratar hafa fengið 746 milljónir, Miðflokkurinn 669 milljónir, Viðreisn 647 milljónir og Flokkur fólksins 533 milljónir.
Þá hefur Sósíalistaflokkurinn alls fengið 108 milljónir króna í framlag á síðasta kjörtímabili og því sem er nýhafið, þrátt fyrir að hafa aðrar þingkosningarnar í röð ekki náð manni inn á þing. Í bæði skiptin hefur flokkurinn náð að komast yfir 2,5% þröskuldinn. Ásamt Sósíalistum munu Píratar þiggja ríkisframlög án þess að vera með mann á þingi á yfirstandandi kjörtímabili.
Aðrir flokkar sem hafa fallið af þingi þáðu einnig framlög á tímabilinu. Borgarahreyfingin fékk úthlutað 154 milljónum og Björt framtíð 140 milljónum. Loks fékk Dögun 41 milljónir og Flokkur heimilanna 40 milljónir.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu sem kom út í morgun. Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér.