Fjárfestar í hlutafjárútboði Ísfélagsins hf. sem hófst á fimmtudaginn voru upplýstir um nýjan áhættuþátt varðandi starfsemi fyrirtækisins í gær.
Um er að ræða sérstaka áhættu tengda veituinnviðum í Vestmannaeyjum sem gæti haft áhrif á rekstur og afkomu Ísfélagsins.
Hinn nýi áhættuþáttur kemur til vegna þess að akkeri Hugins VE losnaði síðastliðinn föstudag og festist í vatnslögninni til Eyja. Samkvæmt Ríkislögreglustjóra er lögnin mikið skemmd en þó eru full afköst sem stendur.
„Sá hluti starfsemi Ísfélags sem fram fer í Vestmannaeyjum er háður aðgengi að raforku og neysluvatni, sem hvoru tveggja er dreift með neðansjávarlögnum sem liggja á hafsbotni, frá megindreifikerfum á fastalandinu til Vestmannaeyja. Komi til þess að rof eða annars konar tjón verði á slíkum veitulögnum, kann það að hafa áhrif á getu Ísfélags til þess að stunda landvinnslu sjávarafla í Vestmannaeyjum, um lengri eða skemmri tíma, allt eftir atvikum hverju sinni,“ segir í viðauka við lýsingu Ísfélagsins sem var sendur út í gær.
„Við slíkar kringumstæður myndi Ísfélag leitast við að flytja, eftir föngum, slíka vinnslu þess afla sem annars yrði unninn í Vestmannaeyjum til annarra starfsstöðva sinna í Þorlákshöfn, Siglufirði eða Þórshöfn. Engin trygging er þó fyrir því að nægjanleg afkastageta reynist fyrir hendi á umræddum starfsstöðvum til þess að sinna slíkri vinnslu ef til kæmi. Verði kringumstæður af þeim toga sem hér er lýst að veruleika, kynni það að hafa veruleg neikvæð áhrif á rekstur Ísfélagsins, fjárhagslega afkomu þess og arðsemi hlutafjár félagsins.“
Er athygli fjárfesta í þessu sambandi vakin á ákvörðun Ríkislögreglustjóra, sem birt var 28. nóvember 2023, um að lýsa yfir hættustigi í Vestmannaeyjum vegna skemmda á neysluvatnslögn þeirri sem liggur til Vestmannaeyja.
„Að mati Ríkislögreglustjóra er raunveruleg hætta til staðar á því að lögnin rofni alfarið í kjölfar umfangsmikilla skemmda og tilfærslu á lögninni neðansjávar, en skemmdir þessar urðu nýverið er ankeri fiskiskips í eigu þriðja aðila festist í lögninni. Samkvæmt upplýsingum Ríkislögreglustjóra er nú unnið að mati á afleiðingum takmarkaðs rennslis ferskvatns til Vestmannaeyja, bæði fyrir íbúa Vestmannaeyja og atvinnustarfsemi þar, sem og að gerð úrbótaáætlunar vegna þessa.“
„Hefur Ríkislögreglustjóri upplýst að neysluvatnslögnin sé, þrátt fyrir ofangreint, nothæf sem stendur og að af þeim sökum sé ekki þörf á að spara vatn í Vestmannaeyjum eða safna því að sinni.“
Í aukalýsingunni eru fjárfestar sem þegar hafa skráð sig fyrir verðbréfum í almennu hlutafjárútboði Ísfélagsins minntir á réttinn til að afturkalla áksriftir. Slíkt er heimilt að innan tveggja virkra daga frá birtingu viðaukans sem birtist í gær.