Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkaði um 0,1% í nóvember, samanborið við 0,9% hækkun í október. Síðastliðna þrjá mánuði hækkaði vísitalan um 2,5% en hún hækkaði um 1,3% á síðustu sex mánuðum, að því er kemur fram í tilkynningu HMS.

Vísitalan, sem sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs, hækkaði um 3,4% á síðustu tólf mánuðum en til samanburðar mældist ársbreytingin 2,9% í október.

Árstaktur fjölbýlis hækkar

Sérbýlishluti vísitölunnar, sem er nokkuð sveiflukenndur sökum fárra kaupsamninga sem standa undir honum, lækkaði um 0,8% á milli mánaða en til samanburðar hækkaði hann um 2,5% í október. Ársbreyting á sérbýlishlutanum mældist jákvæð um 3,1% í nóvember.

Verð á fjölbýli hækkaði um 0,4% í nóvember samanborið við 0,5% hækkun í október. Árshækkun fjölbýlishlutans mælist nú 3,5% samanborið við 3,1% í september.