Nasdaq Iceland mun fjölga félögum í Úrvalsvísitölunni frá tíu upp í allt að fimmtán félög núna um áramótin, samkvæmt tilkynningu frá vísitöludeild Nasdaq.
Mælikvörðum fyrir vali í vísitöluna hefur þá einnig verið breytt og endurspeglar vísitalan nú bæði seljanleika og stærð.
„Breytingin miðar að því að vísitalan nái utan um 80% af flotleiðréttu markaðsvirði og endurspegli þannig betur seljanlegustu fyrirtækin á markaði. Breytingin tekur gildi við opnun markaða 2. janúar 2024 í tengslum við venjubundna hálfsársendurskoðun á samsetningu vísitölunnar,“ segir í tilkynningu til fjölmiðla.
Á sama tíma breytist nafn og auðkenni vísitölunnar til þess að endurspegla aukinn fjölda félaga. Nýtt nafn vísitölunnar verður OMX Iceland 15 (OMXI15).
OMX Iceland 15 vísitalan verður þannig Úrvalsvísitala Nasdaq Iceland samsett af þeim fimmtán stærstu félögum sem mest viðskipti eru með á hlutabréfamarkaði Nasdaq Iceland.
Endurskoðun á sér stað tvisvar á ári og tekur ný samsetning vísitölunnar gildi í janúar og júlí ár hvert.