Flugfélagið TUI Airways tók í dag í notkun nýja Boeing 737-8 flugvél sem lenti á Keflavíkurflugvelli á ellefta tímanum í morgun eftir brottför frá Gatwick-flugvelli í London. Við hátíðlega athöfn á Keflavíkurflugvelli gaf Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar, vélinni nafnið Reykjavík.
Í tilkynningu frá Isavia segir að um 50 gestir hafi verið viðstaddir athöfnina, þar á meðal Grýla og synir hennar jólasveinarnir. Farþegum sem komu og fóru með flugvélinni var einnig boðið upp á góðgæti og glaðning af þessu tilefni.
„Það er sannarlega heiður að aðili eins og TUI, sem við höfum verið í langvarandi samstarfi við, hafi valið að nefna eina af flugvélum sínum eftir höfuðborginni okkar. Og það sem meira er, þetta táknar ekki aðeins náið samband TUI og Íslands, heldur einnig það traust sem okkur er sýnt sem mikilvægum áfangastað,“ segir Guðmundur Daði Rúnarsson, framkvæmdastjóri viðskipta og þróunar á Keflavíkurflugvelli.
Frá 17. desember 2023 til 28. febrúar 2024 flýgur TUI frá London Gatwick, Manchester og Bristol til Íslands og hefur aukið framboð sitt. Alls eru áætlaðar yfir 100 ferðir til og frá Íslandi til vetrarloka árið 2024.
„Það er mér mikil ánægja að vera guðmóðir þessarar TUI Boeing 737-8 vélar sem nefnd er eftir fallegu borginni okkar, nyrstu höfuðborg heims. Reykjavík heldur áfram að veita innblástur og heilla ferðamenn frá öllum heimshornum. Þessi nýi fulltrúi okkar mun gera okkur enn vinsælli,“ segir Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, forseti borgarstjórnar.