Einar Örn Ólafsson, forstjóri flugfélagsins Play, segir ekki útilokað að frekari vöxtur flugfélagsins færi fram á erlendri grundu með erlendum áhöfnum.
Þetta kemur fram í viðtali Einars við Flight Global sem var tekið í Lundúnum 9. maí. Einar opnar þar á möguleikann að hafa heimahöfn t. d. á Spáni með spænskum áhöfnum sem myndu þjónusta flug félagsins milli Spánar og Íslands.
„Ég býst við að það yrði forsenda fyrir okkar næstu bækistöð. Við myndum þá bara fljúga til Íslands í staðinn frá Íslandi og vaxa síðan þaðan“ segir Einar í samtali við Flight Global.
Forðast beina samkeppni við Ryanair
Vöxtur Play hefur verið mikill frá stofnun og segir Einar í viðtalinu að flugfélagið þurfi að íhuga vel hvernig verður farið í frekari vöxt.
„Spurningin er hvenær er rétti tíminn,“ segir Einar og bætir við að Play þyrfti að velja sér áfangastaði þar sem félagið væri ekki í beinni eða of mikilli samkeppni við írska lággjaldaflugfélagið Ryanair.
Einar segir jafnframt í viðtalinu að flugfélaginu hafi gengið vel að ráða flugfreyjur en illa að ráða flugmenn.„Vinnumarkaðurinn á Íslandi er þannig að við erum aldrei ódýrasta landið,“ segir Einar. „Flugmenn á Íslandi eru á mjög fínum launum.“
„Þannig við erum búin að tæma íslenska markaðinn. Við höfum leitað til Bretlands og erum með þónokkra breska flugmenn sem hafa annað hvort flutt til Íslands eða búa í Bretlandi og taka tíu daga á Íslandi og tíu daga heima.
Um 420 starfsmenn vinna hjá Play í dag og er launakostnaður um 17% af öllum útgjöldum félagsins.
Einar segir að þrátt fyrir að launakostnaður sé hátt hlutfall af útgjöldum sé eldsneytiskostnaður enn þá mun hærri kostnaðarliður.