Skuldabréfaútgáfa fyrirtækja hefur aukist til muna í ár í samanburði við sama tímabil í fyrra en samkvæmt Financial Times eru fyrirtæki að reyna að klára fjármögnun vegna yfirvofandi óstöðugleika á mörkuðum í kringum forsetakosningarnar í Bandaríkjunum í haust.
Það sem af er ári hafa fyrirtæki gefið út skuldabréf í dölum fyrir 606 milljarða Bandaríkjadala samkvæmt gögnum frá LSEG. Mun það vera 40% meira en á sama tímabili í fyrra og hefur skuldabréfaútgáfa ekki verið jafn mikil síðan 1990.
Fjárfestar og lánastofnanir segja að fyrirtæki hafi sótt sér mikið fjármagn í fyrra vegna lægsta vaxtaálags fyrirtækjaskuldabréfa ofan á sambærileg ríkisbréf síðustu ár.
Samkvæmt FT eru fyrirtæki hins vegar að flýta skuldabréfaútgáfu í ár til að ljúka við fjármögnun til að forðast óstöðugleika á mörkuðum eftir kosningar í haust.
„Við erum sirka tveimur mánuðum á undan áætlun miðað við venjulega útgáfu á skuldabréfum í fjárfestingaflokki,“ segir Teddy Hodgson, framkvæmdastjóri skuldabréfasviðs hjá Morgan Stanley í samtali við FT.
„Ég er sannfærður um að kosningarnar séu drifkrafturinn á bak við þetta,“ bætir hann við.