Hækkun á gengi Berkshire Hathaway, fjárfestingafélag Warren Buffet, á markaði ýtti helstu hlutabréfavísitölum vestanhafs upp á við.
Hlutabréfamarkaðurinn í Bandaríkjunum rétti örlítið út kútnum í gær eftir frekar dræma viku fyrir helgi.
Gengi Berkshire Hathaway rauk upp eftir að félagið birti árshlutauppgjör sitt. B bréf í fjárfestingafélaginu fóru upp um 3,6% og endaði gengið í 352,58 dölum.
Átti þessi hækkun stóran þátt í að ýta S&P500 vísitölunni upp um 0,9% í gær. Á sama tíma fór Dow Jones vísitalan upp um 408 punkta eða 1,2%.
Þá stefni allt í að Nasdaq vísitalan, þar sem tæknifyrirtæki eru þungamiðjan, myndi lækka eftir að hlutabréf í Tesla tóku dýfur. Fyrirtækið lokaði þó deginum með aðeins 1% lækkun og hækkaði Nasdaq um 0,6%.