Hlutabréfaverð Marels hækkaði áttunda viðskiptadaginn í röð og fór gengi matvælafyrirtækisins upp um rúm 3% í Kauphöllinni í 874 milljón króna veltu.
Gengi Marels hefur nú hækkað um tæp 24% síðastliðinn mánuð og er lækkun félagsins á árinu kominn niður í 5%.
Þann 9. nóvember fór gengið í 327 krónur og hafði þá ekki verið lægra síðan í janúar 2018 en dagslokagengið í dag var 462 krónur.
Fjárfestingafélagið Skel hækkaði mest allra skráðra félaga í dag og fór gengið upp um 6,5% í 58 milljón króna veltu. Skel, líkt og önnur félög, er að eiga ágætis mánuð eftir dauft ár á markaði. Hlutabréf í félaginu hafa hækkað um tæp 6% síðastliðinn mánuð en lækkað um 14% á árinu.
Dagslokagengi Amaroq var 111 krónur og hefur gengið aldrei verið hærra en hlutabréf málmleitarfélagsins hafa hækkað um 41% á árinu.
Mesta velta var með bréf Kviku banka en félagið hækkaði lítillega í milljarða króna viðskiptum í dag. Dagslokagengi Kviku var 14,8 krónur. Velta með bréf Síldarvinnslunnar nam 737 milljónum í Kauphöllinni í dag og fór gengið upp um 1,5%.
Alvotech, Hagar og Festi voru einu félögin sem lækkuðu um meira en prósent en öll þrjú lækkuðu um sirka 1,5%.
Úrvalsvísitalan OMXI 10 hækkaði um tæpt prósentustig og lokaði í 2.292,4 stigum. Heildarvelta á markaði nam 5,9 milljörðum.