Fjárhagsáætlun Hafnarfjarðarbæjar, sem samþykkt var í bæjarstjórn í gær, gerir ráð fyrir 1.725 milljóna króna afgangi á A- og B-hluta sveitarfélagsins á næsta ári.
Samkvæmt Kauphallartilkynningu sveitarfélagsins er gert ráð fyrir að rekstur A-hluta verði jákvæður um 861 milljón króna á árinu 2024 samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að veltufé frá rekstri verði 5,4% af heildartekjum eða 2.619 milljónir króna.
Óbreytt útsvar og lægri fasteignaskattur
„Fjárhagsleg staða Hafnarfjarðarbæjar er góð og er áætlað að skuldaviðmið sveitarfélagsins haldi áfram að lækka og verði komið niður í um 86% í árslok 2024, sem er vel undir 150% skuldaviðmiði samkvæmt reglugerð um fjárhagsleg viðmið og eftirlit með fjármálum sveitarfélaga,“ segir í tilkynningunni.
Þá greinir bæjarfélagið frá því að útsvarsprósenta verður óbreytt og álagningarprósenta fasteignaskatts á íbúða- og atvinnuhúsnæði lækkuð úr 0,223% í 0,217% til þess að koma til móts við hækkun fasteignamats.
Þá verður álagningarprósenta fasteignaskatts á atvinnuhúsnæði lækkuð úr 1,400% í 1,387%.
„Áfram er lögð áhersla á að rekstur Hafnarfjarðarbæjar sé agaður og virðing borin fyrir fjármunum skattgreiðenda. Góður rekstur undanfarin ár hjálpar til nú þegar efnahagsaðstæður í þjóðfélaginu eru krefjandi,“ segir Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri.
,,Við gerum ráð fyrir ríflegum afgangi af rekstrinum og viljum sjá skuldahlutföll bæjarins halda áfram að lækka. Í því skyni er mikilvægt að halda lántökum í lágmarki. Á sama tíma er lögð áhersla á að efla enn frekar þjónustu við bæjarbúa og mikilli innviðauppbyggingu haldið áfram.“