Bill Gross, einn þekktasti skuldabréfafjárfestir Bandaríkjanna, segir að kjör Donalds Trumps í forsetakosningum Bandaríkjanna í haust myndi hafa verri áhrif á skuldabréfamarkaðinn vestanhafs en endurkjör Biden.
Í viðtali hjá Financial Times, segir Gross að endurkoma Trumps í forsetastól muni óhjákvæmilega auka skuldabréfaútgáfu Bandaríkjanna sem myndi valda upplausn á skuldabréfamarkaði.
Gross var lengi þekktur sem „skuldabréfa-kóngurinn“ í Bandaríkjunum er hann rak eignastýringarfyrirtækið PimCo.
„Trump mun valda bjarnarmarkaði þar sem hann einfaldlega elskar dýra hluti samhliða skattalækkunum,“ segir Gross í samtali við FT. Hann segir þó Biden engin draumur heldur þar sem hann nú þegar beri ábyrgð á billjóna (e. trillon) dala halla ríkissjóðs.
„En kjör Trumps mun valda frekari upplausn,“ segir Gross.
Forsetakjör í Bandaríkjunum fer fram í nóvember en samkvæmt FT hefur Trump ítrekað sagt síðustu daga að hann muni endurreisa efnahag Bandaríkjanna og blása lífi í fjármálamarkaði.
Samkvæmt hugmyndabankanum Committee for a Responsible Budget er áætlað að efnahagsstefna Trump muni kosta um 4 billjónir (e. trillion) dali næsta áratuginn.