Hlutabréf í rafbílaframleiðandanum Tesla lækkuðu um 1,8% í gær en fyrirtækið hélt kynningarviðburð á Cybertruck bíl sínum í Texas í gær.
Elon Musk forstjóri Tesla sagði á viðburðinum að fyrirtækið búist við því að framleiða 250 þúsund trukka á ári en það muni þó ekki gerast fyrr en árið 2025.
Upphaflega átti bíllinn að kosta um 40 þúsund dali sem samsvarar um 5,5 milljónum króna en verðið verður líklegast nær 50 þúsund dölum sem er um 6,9 milljónir.
Dýrari týpurnar munu fara upp í allt að 96 þúsund dali.
Musk sagði Cybertruck bestu vöru Tesla til þessa en fyrirtækið hefur átt í stökustu vandræðum með framleiðsluna.
Hlutabréf í Tesla hafa hækkað um 122% á árinu.