Dr. Jón Þór Sturluson hefur verið ráðinn aðalhagfræðingur og framkvæmdastjóri efnahagsgreiningar hjá sænska fjármálaeftirlitinu, Finansinspektionen, og mun hefja þar störf í maí. Hann greinir frá þessu í færslu á Facebook.

Jón Þór starfar í dag sem deildarstjóri viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík. Hann var þar áður aðstoðarforstjóri Fjármálaeftirlitsins á árunum 2013 til 2020.

„Mitt helsta viðfangsefni og ábyrgðarsvið í nýju starfi verður yfirumsjón með greiningum á fjármálastöðugleika og undirbúningur þjóðhagsvarúðaraðgerða, en FI er stjórnvaldið á því sviði í Svíþjóð. Ég verð einnig hluti af framkvæmdastjórn stofnunarinnar og ráðgjafi í málefnum sem varða efnahagsmál og fjármálamarkaði,“ skrifar Jón Þór.

Var ekki heimild í sænskum lögum

Hann segir aðdragandann að ráðningunni hjá sænska fjármálaeftirlitinu hafa verið nokkuð langan, einkum vegna ríkra öryggiskrafna sem stjórnendur og lykilstarfsmenn stofnunarinnar þurfa að uppfylla.

„Þó það sé ágætlega þekkt í alþjóðlegu umhverfi fjármálaeftirlits og seðlabanka að leitast sé eftir utanaðkomandi aðilum í toppstöður þá þurfti að fá sérstaka blessun sænsku ríkisstjórnarinnar á þessum ráðahag, þar sem ekki var fyrir hendi heimild í sænskum lögum til að ráða erlendan ríkisborgara í þessa tilteknu stöðu.

Sú heimild fékkst og þá tók viðbakgrunnsannsókn af hálfu Finansinspektionen (FI) og að lokum tók sænska öryggislögreglan (SÄPO) við keflinu og gerði sjálfstæða öryggiskoðun á mér, ættmennum mínum og öðrum mér tengdum. Allt þetta leiddi að þessari niðurstöðu að eitt heimili fjölskyldunnar verður í sænsku höfuðborginni.“

Stórt tækifæri fyrir 53 ára hagfræðikennara frá Íslandi

Jón Þór segir að viðfangsefnin séu að mörgu leyti lík þeim sem hann sinnti hjá Fjármálaeftirlitinu á Íslandi en hann muni einnig takast á við ný verkefni.

„Sænska hagkerfið er rúmlega 20 sinnum stærra en það íslenska og fjármálamarkaðurinn þar er mun alþjóðlegri og fjölbreyttari en hér. Þetta verður því mikil áskorun en um leið stórt tækifæri fyrir 53 ára hagfræðikennara frá Íslandi“

Jón Þór útskrifaðist með doktorsgráðu í hagfræði frá Stockholm School of Economics árið 2003 með áherslu á atvinnuvega- og orkuhagfræði. Áður lauk hann B.Sc. og M.Sc. prófi frá Háskóla Íslands.