Karl J. Steingrímsson athafnamaður, oft kenndur við verslunina Pelsinn, lést á Landspítalanum í Fossvogi síðasta fimmtudag, 76 ára að aldri. Greint er frá þessu í Morgunblaðinu sem kom út í morgun.
Karl var umsvifamikill í fasteignaviðskiptum um nokkurra áratuga skeið. Hann eignaðist nokkrar þekktar eignir í miðbæ Reykjavíkur, þar á meðal Kirkjuhvol, Skólabrú, Austurstræti 16, Naustið, Tryggvagötu 18 og Laugaveg 16 ásamt Garðatorgi í Garðabæ.
Karl stofnaði félag með eiginkonu sinni árið 1976 og hófu þau sjálfstæðan rekstur sem Karl sinnti allt til dánardags. Hjónin opnuðu verslunina Pelsinn sem rekin var í rúmlega 40 ár. Hún var upphaflega til húsa við Njálsgötu 14, en síðar við Kirkjuhvol og loks Tryggvagötu 18.
Karl var einnig virkur í félagsstörfum. Hann var m.a. formaður Knattspyrnudeildar Breiðabliks þegar Breiðablik varð Íslandsmeistari bæði í meistaraflokki kvenna og karla. Hann var gjaldkeri í stjórn vináttufélags Ítalíu sem kom að ýmsum viðburðum. Karl var jafnframt formaður húsnefndar JCI-hreyfingarinnar á Íslandi og stóð meðal annarra að styrktarframlagi og fjársöfnun fyrir húsnæði JCI við Hellusund 3 í Reykjavík.
Útför Karls fer fram í Hallgrímskirkju þriðjudaginn 19. mars klukkan 13:00.