Malbikunarstöðin Höfði, sem er í eigu Reykjavíkurborgar, hagnaðist um tíu milljónir króna árið 2022 en afkoman síðustu þrjú ár hefur verið nokkuð slök sem má m.a. rekja til flutninga á starfsemi félagsins.

Að sama skapi hefur afkoma og velta samkeppnisaðila aukist töluvert undanfarin ár og nam sem dæmi hagnaður Malbikstöðvarinnar ehf. 737 milljónum í fyrra.

Velta Höfða jókst um 14% á milli ára og nam 1,34 milljörðum en var enn um 29% minni en á árinu 2019. Í skýrslu stjórnar segir að framleiðsla á árinu 2022 hafi verið minni en gert var ráð fyrir í upphafi árs. Miðað við framkvæmdaáform opinberra aðila á höfuðborgarsvæðinu gerir félagið ráð fyrir að framleiðsla aukist aftur næstu árin.

„Mikil samkeppni er í framleiðslu á malbiki sem hefur áhrif á sölu malbiks miðað við fyrri ár en fjöldi verktaka sem hafa yfir að ráða tekjum til að leggja út malbik er takmarkaður.“

Kostnaðarsamt, flókið og tímafrekt

Starfsemi Höfða var á Sævarhöfða 6-10 en unnið hefur verið að flutningum yfir á lóð að Álhellu 34 í Hafnarfirði sem félagið keypti árið 2021 en fyrsta framleiðsla hófst þar í maí 2022.

„Flutningar starfseminnar hafa verið kostnaðarsöm aðgerð fyrir félagið ásamt því að vera flókin og tímafrek framkvæmd. Enn er eftir að rífa nokkur mannvirki á lóðunum að Sævarhöfða,“ segir stjórnin.

Þá var flutningi á framkvæmdadeild og skrifstofu Höfða frestað tímabundið. Í skýrslu stjórnar, sem var undirrituð í lok mars, segir að stefnt sé að því að semja að nýju við umhverfis- og skipulagssvið borgarinnar um dagsett lok á viðveru Höfða að Sævarhöfða.

Eignarhaldið hefur verið til umræða í nokkurn tíma og hefur Viðreisn boðað sölu á Höfða í nokkurn tíma. Tillögu Sjálfstæðisflokksins um að setja félagið í söluferli var hins vegar vísað frá árið 2021.

Þess í stað ákvað borgarráð að láta fjármála- og áhættusvið borgarinnar meta kosti og galla sölu. Áform síðasta borgarmeirihluta voru að kanna sölu eftir flutninga á starfseminni.

Fréttin birtist fyrst í nýjasta tölublaði Viðskiptablaðsins sem kom út á föstudaginn.