Viðurkenningarkröfu þrettán fagfjárfesta um skaðabótaskyldu Gamma Capital Management vegna „saknæmrar og ólögmætrar háttsemi” við rekstur á fagfjárfestasjóðnum GAMMA:ANGLIA var vísað frá dómi í Héraðsdómi Reykjavíkur á þriðjudaginn.
Fagfjárfestarnir keyptu allir hlutdeildarskírteini í sjóðnum árið 2017 en samkvæmt þeim gaf Gamma út kynningarefni sem hafi gefið ranga mynd af stærð sjóðsins, stöðu og stjórnunarháttum hans.
Sjóðurinn var kynntur sem sérhæfður fjárfestingasjóður sem yrði 30 milljónir sterlingspunda að stærð og myndi fjárfesta í tíu fasteignaþróunarverkefnum í Bretlandi.
Til að lesa meira
Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér.
Verð frá 2.749 kr. á mánuði