Stjórn Kviku banka hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að áætlanir gera ráð fyrir að sölu eða skráningu TM verði lokið á síðari hluta næsta árs.

„Ákvörðun þessi er hluti af framtíðarsýn Kviku þar sem lögð er áhersla á að einfalda rekstur samstæðunnar og styrkja hefðbundna bankastarfsemi í samræmi við markmið bankans um að auka samkeppni og einfalda fjármál viðskiptavina.

Gert er ráð fyrir að eftir sölu eða skráningu TM verði meginstarfsemi Kviku á sviði viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi auk eignastýringar.“

Stjórn Kviku banka hefur tekið ákvörðun um að hefja undirbúning að sölu eða skráningu TM trygginga. Í tilkynningu til Kauphallarinnar segir að áætlanir gera ráð fyrir að sölu eða skráningu TM verði lokið á síðari hluta næsta árs.

„Ákvörðun þessi er hluti af framtíðarsýn Kviku þar sem lögð er áhersla á að einfalda rekstur samstæðunnar og styrkja hefðbundna bankastarfsemi í samræmi við markmið bankans um að auka samkeppni og einfalda fjármál viðskiptavina.

Gert er ráð fyrir að eftir sölu eða skráningu TM verði meginstarfsemi Kviku á sviði viðskipta- og fjárfestingabankastarfsemi auk eignastýringar.“

Takmörkuð tekjusamlegð milli Kviku og TM

Kvika banki sameinaðist TM og Lykli vorið 2021. Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku, sagði í viðtali við Viðskiptablaðið í febrúar síðastliðnum að samruninn hafi reynst mjög hagfelldur, fyrst og fremst vegna tækifæra með hagkvæmari fjármögnun Lykils.

„Satt best að segja efast ég um að án Lykils hefði samruninn við TM orðið að veruleika,“ sagði Marinó.

Ármann Þorvaldsson, sem tók við sem forstjóri Kviku í ágúst, tekur undir þessi sjónarmið í tilkynningu bankans og segir að stór hluti af þeirri samlegð sem hefur náðst fólst í sameiningu lánastarfsemi Lykils við Kviku. Takmörkuð tekjusamlegð hafi þó verið af tryggingastarfsemi og bankastarfsemi samstæðunnar.

„Því er það mat stjórnenda að það sé hagkvæmara bæði fyrir Kviku og TM að skilja TM frá samstæðunni og styrkja verulega bankastarfsemi okkar í kjölfarið.“

Gert ráð fyrir umtalsverðri greiðslu til hluthafa

Í tilkynningu Kviku í kvöld segir að búist sé við því að eiginfjárstaða Kviku styrkist verulega þegar af sölu eða skráningu TM verður, sem geri bankanum kleift að styðja við innri vaxtartækifæri hans á öllum sviðum.

„Er þá meðal annars horft til þess að með auknu eigin fé geti bankinn styrkt markaðsstöðu sína og aukið áhættudreifingu lánabókar frá því sem nú er bæði á sviði einstaklings- og fyrirtækjalána. Enn fremur er stefnt að því að umtalsverður hluti söluandvirðis verði greiddur til hluthafa í formi arðgreiðslu og/eða endurkaupa á eigin bréfum.“

Kvika stefnir að því að ráða ráða ráðgjafa og ákvarða næstu skref á næstu vikum. Stefnt er að því að nánari kynning á áætlunum bankans í kjölfar fyrirhugaðrar sölu verði haldin í tengslum við uppgjör þriðja ársfjórðungs, sem er gert ráð fyrir að verði 2. nóvember næstkomandi.

„Með sölu eða skráningu á TM er ætlunin að Kvika geti sótt enn frekar fram og aukið markaðshlutdeild sína á öllum tekjusviðum bankans. Rekstur og skipulag bankans verður einfaldara, tekjumyndun stöðugri, arðsemi betri og framtíðarvaxtatækifæri meiri,“ segir Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kviku.

„Frá sameiningu Kviku við TM hf. og Lykil fjármögnun hf. árið 2021 hefur sameinað félag náð miklum árangri í lækkun rekstrarkostnaðar og fjármagnskostnaðar, sem hefur skilað hluthöfum Kviku umtalsverðum verðmætum. Stór hluti samlegðarinnar sem náðst hefur fólst í sameiningu lánastarfsemi Lykils við Kviku, en takmörkuð tekjusamlegð hefur verið af tryggingastarfsemi og bankastarfsemi samstæðunnar. Því er það mat stjórnenda að það sé hagkvæmara bæði fyrir Kviku og TM að skilja TM frá samstæðunni og styrkja verulega bankastarfsemi okkar í kjölfarið.

Á sama tíma erum við sannfærð um að TM, sem er einstaklega vel rekið og verðmætt tryggingafélag með öflugan mannauð, muni geta vaxið og dafnað enn frekar með nýju eignarhaldi. Það hefur verið frábært að vinna með öllu því öfluga starfsfólki sem TM hefur á að skipa og mun vera mikil eftirsjá af því fyrir annað starfsfólk Kviku. Við munum þó starfa áfram saman á næstu mánuðum.“