Tekjur Síldarvinnslunnar (SVN) á fyrsta ársfjórðungi námu 81,4 milljónum dala, sem samsvarar um 11,2 milljörðum íslenskra króna á meðalgengi dals og krónu á tímabilinu. Hagnaður samstæðunnar nam 11,3 milljónum dala eða um 1,5 milljörðum íslenskra króna.
Um töluverðan samdrátt er að ræða miðað við fyrsta ársfjórðung 2023 er tekjur samstæðunnar námu 131,5 milljónum dala og hagnaður 29,5 milljónum dala. Um 50,1 milljóna dala tekjusamdrátt er að ræða milli ára eða um 38,1%.
„Loðnubresturinn í vetur vegur þungt í samdrætti fjórðungsins. Eftir nokkur góð ár í loðnu var ekkert veitt í vetur, sem er áfall fyrir fyrirtæki eins og okkar. Á sama tíma hefur ríkt óvissa með rekstur bolfiskeiningar okkar í Grindavík sem enn fremur dregur úr afkomu samanborið við fyrra ár,” segir Gunnþór B. Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar í uppgjörinu.
Í uppgjörinu segir að ásamt engum loðnukvóta höfðu jarðhræringarnar við Grindavík mikil áhrif á rekstur Vísis ehf.
„Afkomulega hafa þessir þættir valdið miklum samdrætti, en framleiðsluverðmæti loðnuvertíðar fyrir ári síðan nam um 70 milljónum USD. Uppsjávarveiðin dróst því saman um 47.600 tonn, móttaka fiskimjölsverksmiðja um 58.000 tonn, og hráefnismóttaka í fiskiðjuverinu um 15.600 tonn. Það er ljóst að fyrirtæki eins og okkar getur lítið gert til að verja sig þegar svona mikill samdráttur verður í aflaheimildum,” segir Gunnþór.
Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) á tímabilinu var 19,2 milljón dalir eða 23,6% af rekstrartekjum, en var 39,6 milljón dalir og 30,1% af rekstrartekjum á sama tímabili 2023.
Gunnþór segir að varnarbarátta hafi verið háð varðandi bolfiskvinnsluna á Reykjanesi.
„Taka þurfti marga starfsmenn af launaskrá en bætt var í vinnslu í Þýskalandi í dótturfélagi okkar þar, auk þess sem saltfiskvinnslu var komið upp í Helguvík til bráðabirgða. Engin vinnsla var í frystihúsinu í Grindavík en fyrir ári var unnið úr 3.100 tonnum af hráefni. Lítið sem ekkert var unnið í saltfiskvinnslu okkar í Grindavík, en á sama tíma fyrir ári var unnið úr 2.500 tonnum. Búið er að vinna saltfisk úr rúmlega 3.000 tonnum af hráefni á tímabilinu bæði í Helguvík og Cuxhaven, samdrátturinn í landvinnslu Vísis nemur um 2.600 tonnum af hráefni,” segir Gunnþór.
Tekið er fram að þrátt fyrir áskoranir í rekstri, hefur Síldarvinnslan unnið að því að hagræða á móti. Einu skipi var lagt um áramót og reiknar SVN með áframhaldandi hagræðingu á útgerðarsviði.
„Óvissan með Grindavík gerir það að verkum að við erum að fara yfir skipulag á bolfiskvinnslu til framtíðar og til hvaða ráðstafana sé unnt að grípa til ef ekki er hægt að nýta eignir okkar í Grindavík. Þar á meðal er verið að skoða möguleika á samstarfi við aðra framleiðendur og nýta með því þær fjárfestingar sem eru til staðar í landinu. Það er trú okkar að samkeppnishæfni íslensks sjávarútvegs muni felast í auknu samstarfi á vinnslu- og markaðshliðinni.”
Eignir SVN um 150 milljarðar
Heildareignir Síldarvinnslunnar námu 1,07 milljörðum dala í lok mars 2024 sem samsvarar um 148 milljörðum króna á gengi dagsins. Þar af voru fastafjármunir 880 milljónir dala og veltufjármunir 191,4 milljónir dala.
Mun það vera lækkun frá fjórða ársfjórðungi 2023 en í lok árs námu heildareignir 1,1 milljarði dala og þar af voru fastafjármunir 889,3 milljónir dala og veltufjármunir 209,6 milljónir dala.
Handbært fé frá rekstri nam 23,1 milljónum dala á fyrsta ársfjórðungi 2024 en var 24 milljónir dala á sama tímabili 2023.