Fyrir fimm dögum síðan náðu OPEC+ ríkin samkomulagi um að draga úr olíuframleiðslu um sem nemur einni milljón tunna á dag. Sádi-Arabía ákvað einnig að framlengja eigin skerðingu sem hljóðar upp á sambærilegt magn.
Sérfræðingar á olíumarkaði bjuggust við því að þetta myndi ýta olíuverði upp þar sem skerðingarnar koma ofan í aukin átök í Mið-Austurlöndum.
Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hins vegar haldið áfram að lækka og farið niður um 3,5% síðastliðna fimm daga. Verðið á tunnunni af Brent hráolíu farið úr 81,4 dölum niður í 78,4 dali á tímabilinu.
Vestur Texar fatið lækkaði um 1% í dag og fór tunnan niður í 72,4 dali.
Samkvæmt Reuterssegja Rússar að það muni taka tíma fyrir skerðingarnar að ýta olíuverðinu upp aftur á sama tíma og Sádi Arabía íhugar að halda skerðingunum áfram vel inn á fyrsta fjórðung næsta árs.
Fjárfestar á olíumarkaði telja þó ólíklegt að skerðingarnar muni hafa teljandi áhrif, það er minnkandi kaupmáttur víða mun hafa áhrif á eftirspurnina.