Samskip hefur ákveðið að fara í bótamál gegn Eimskipi vegna „ólögmætrar og saknæmrar“ athafna skipafélagsins gagnvart sér.
Líkt og Viðskiptablaðið hefur fjallað um síðustu daga hafa forsvarsmenn Samskipa og lögmenn félagsins sakað Eimskip um falska játningu er félagið játaði samráðsbrot á árunum eftir hrun.
„Fyrir liggur að Eimskip hefur í sátt við Samkeppniseftirlitið (SKE) lýst því yfir að félagið hafi átt í samráði við Samskip sem efnt hafi verið til á fundi 6. júní 2008 og í framhaldi þess fundar,“ segir í fréttatilkynningu frá Samskip.
„Þessi yfirlýsing félagsins er röng og með öllu tilhæfulaus. Þá er það að sama skapi fullkomlega rangt að félögin hafi átt í samráði um breytingar á flutningakerfi, gert með sér samkomulag um skiptingu markaða, um álagningu gjalda eða um afsláttarkjör,“ segir þar enn fremur.
Í andmælaskjölum Samskipa við frumniðurstöðum SKE í málinu segir að tilvitnaður fundur forsvarsmanna félaganna kom til vegna þess að eigendur Samskipa höfðu orðið þess áskynja að Eimskip stóð höllum fæti eftir miklar offjárfestingar á árunum á undan.
„Markmið eigenda Samskipa með fundinum var að kanna hvort vilji stæði til þess innan Eimskips að selja Samskipum eignir, nánar til tekið finnska gámaflutningafélagið Containerships og hollenska frystigeymslufyrirtækið Daalimpex. Fundurinn var stuttur og árangurslaus. Önnur málefni voru ekki rædd á fundinum,“ segir í andmælum.
Samkeppniseftirlitið lagði engu að síður 4,2 milljarða króna stjórnvaldssekt á Samskip vegna meints samráðs án þess þó að gögn eða vitnisburðir sýndu fram á að samráð hafi verið rætt á fundinum.
Eimskip gerði sátt í málinu árið 2021 og lagði engin gögn fram til að styðja við játningu sína og greiddi félagið 1,5 milljarð krónur í sekt.
Alvarleg atlaga Eimskips að Samskipum
„Um er að ræða mjög alvarlega atlögu að Samskipum enda hefur Eimskip með þessu ranglega sakað félagið, sem og núverandi og fyrrverandi starfsmenn félagsins og Eimskips, um ólögmæta og eftir atvikum refsiverða háttsemi. Rangar sakargiftir af þessum toga eru ólögmætar og þær geta einnig verið refsiverðar fyrir þann sem í hlut á. Í þessu tilviki var þeim beint að helsta keppinauti Eimskips og voru augljóslega til þess fallnar að valda búsifjum í rekstri félagsins og hafa óeðlileg áhrif á samkeppnisstöðu félaganna, Samskipum til tjóns,” segir í tilkynningu Samskipa en Eimskip er markaðsráðandi aðili í skipaflutningum við Íslandsstrendur.
Lögmenn Samskipa hafa sent forstjóra Eimskips kröfubréf vegna framangreinds þar sem þess er einnig óskað að upplýst verði hvaða stjórnendur eða stjórnarmenn komu að ákvörðun um að undirgangast sáttina við SKE og veita stjórnvaldinu með því rangar upplýsingar.
Samskip hafa jafnframt skilað inn kæru til áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna ákvörðunar eftirlitsins í lok ágúst um að leggja á 4,2 milljarða króna sekt á félagið fyrir þátttöku í meintu samráði við Eimskip.
Farið er fram á að ákvörðun SKE verði felld úr gildi og að réttaráhrifum hennar verði frestað á meðan málið er til meðferðar hjá áfrýjunarnefndinni.
„Samskip gagnrýna harðlega ákvörðun Samkeppniseftirlitsins enda er hún efnislega röng og öll málsmeðferðin í brýnni andstöðu við ákvæði samkeppnislaga, sönnunarreglur og fjölmargar grundvallarreglur stjórnskipunar- og stjórnsýsluréttarins. Félagið telur ljóst að fella verði hina kærðu ákvörðun úr gildi í heild sinni vegna þessara alvarlegu annmarka sem leitt hafi til endurtekinna rangra og haldlausra ályktana stofnunarinnar,“ segir Hörður Felix Harðarson, lögmaður Samskipa.
Í kærunni er bent á að rannsókn og ákvörðun SKE sé fordæmalaus fyrir margar sakir.
„Þær kenningar og ályktanir sem settar eru fram í ákvörðun SKE séu í grundvallaratriðum án tengsla við gögn málsins og raunveruleg atvik í rekstri skipafélaganna sem sökuð séu um samráð. Þá hafi SKE endurtekið misfarið með efni gagna og horft fram hjá sönnunargögnum og réttmætum skýringum Samskipa og Eimskips sem ekki hafi fallið að kenningum stofnunarinnar. Þá er með sektarfjárhæðinni farið gegn fjölmörgum réttarreglum og ljóst að til grundvallar þeirri ákvörðun liggja engin málefnaleg sjónarmið,“ segir að lokum í tilkynningu Samskipa.