Hlutabréfaverð Símans hefur fallið um meira en 5% í hundrað milljóna króna viðskiptum frá opnun Kauphallarinnar í morgun og hefur nú lækkað um 11,8% frá lokun markaða á mánudaginn. Gengi fjarskiptafélagsins stendur nú í 10,5 krónum á hlut og hefur ekki verið lægra frá því í júní 2021.

Mikil óvissa ríkir um fyrirhugaða sölu Símans á Mílu til franska sjóðastýringafyrirtækisins Ardian. Samkeppniseftirlitið hefur til 18. ágúst að ljúka rannsókn á viðskiptunum. Eftirlitið birti í gær umsagnir aðila á íslenska fjarskiptamarkaðnum. Flestir þeirra gerðu athugasemdir við 17 ára einkaupasamnings á milli Símans og Mílu sem tekur gildi eftir að sölunni lýkur.

Kaupverðið á Mílu var lækkað úr 78 milljörðum króna í 73 milljarða í síðasta mánuði eftir að Síminn og Ardian komust að samkomulagi um breytingar á kaupsamningnum í tengslum við sáttaviðræður við Samkeppniseftirlitið.