Alls söfnuðu viðskiptavinir Krónunnar 4,5 milljónum króna í neyðarsöfnun Rauða krossins á Íslandi fyrir íbúa Grindavíkur. Upphæðin mun renna óskert í söfnun Rauða krossins til að styðja fjárhagslega við íbúa Grindavíkur í kjölfar eldsumbrota á svæðinu.

Með söfnuninni bauðst viðskiptavinum Krónunnar að bæta 500 krónum eða meira við innkaup sín þegar verslað var á sjálfsafgreiðslukössum verslana um allt land yfir tveggja vikna tímabil.

Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, afhenti Kristínu S. Hjálmtýsdóttur, framkvæmdastjóra Rauða krossins á Íslandi, framlag viðskiptavina í höfuðstöðvum Krónunnar í gær.

„Framlag Krónunnar og viðskiptavina hennar er mjög mikilvægt og sýnir breiðan stuðning í samfélaginu við neyðarsöfnun Rauða krossins, Grindvíkingum til handa,“ segir Kristín S. Hjálmtýsdóttir, framkvæmdastjóri Rauða krossins á Íslandi.

Öllu fé sem safnast í neyðarsöfnuninni verður úthlutað til Grindvíkinga í gegnum úthlutunarnefnd, að undanskildum kostnaði við úthlutunina sjálfa. Úthlutunarnefndin samanstendur af fulltrúum Rauða krossins, félagsþjónustu Grindavíkurbæjar og kirkjunnar í Grindavík.