Samkvæmt tilkynningu frá Vinnumálastofnun barst ein hópuppsögn til stofnunarinnar í nóvember þar sem 79 starfsmönnum var sagt upp störfum í framleiðslu á tölvu-, rafeinda- og optískum vörum.
Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í febrúar 2024.
Líkt og Viðskiptablaðið greindi frá í nóvember sagði íslenska hátæknifyrirtækið Controlant upp 80 starfsmönnum í lok nóvember.
Samkvæmt upplýsingum frá Controlant í október störfuðu um 500 manns hjá fyrirtækinu, langflestir á Íslandi.
Fyrirtækið tilkynnti um hópuppsögnina samhliða tilkynningu um 80 milljón dala fjármögnun sem var leidd af Gildi-lífeyrissjóði með þátttöku annarra lífeyrissjóða ásamt einkafjárfestum og núverandi hluthöfum.
„Controlant gegndi lykilhlutverki í dreifingu bólefna í heimsfaraldrinum og hefur vaktað yfir 6 milljarða bóluefnaskammta á undanförnum þremur árum. Félagið hlaut heimsathygli í lyfjageiranum og víðar fyrir þátttöku í þessu mikilvæga verkefni og þann árangur sem náðist sem sannaði ávinninginn sem hlýst af vöktunarlausnum Controlant. Verkefnið krafðist mikils mannafla og verður samdráttur í því til þess að samtals verða um 80 störf lögð niður þvert á deildir og starfsstöðvar,“ sagði í tilkynningunni í nóvember.