Um 6.500 áskriftir að andvirði 58 milljarða króna – eða sem samsvarar rétt tæplega fjórfaldri eftirspurn – bárust í almennu hlutafjárútboði Ísfélags hf. sem lauk kl. 14 síðdegis í gær, föstudag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Arion banka, eins af þremur umsjónaraðilum útboðsins, nú fyrir skömmu.
Rúmlega fimmföld eftirspurn var eftir þeim hlutum sem boðnir voru í áskriftarbók A og rúmlega þreföld eftirspurn var í áskriftarbók B.
- Heildarfjöldi seldra hluta í útboðinu nam alls 118.923.851 og heildarsöluandvirði þeirra tæplega 18 milljörðum króna.
- Í áskriftarbók A er útboðsgengi 135 kr. á hlut. Áskriftir upp að 500 þúsund krónum að kaupverði voru ekki skertar. Skerðing áskrifta var að öðru leyti hlutfallsleg.
- Í áskriftarbók B er endanlegt útboðsgengi 155 kr. á hlut. Skerðing áskrifta var í samræmi við skilmála útboðsins. Fjárfestar sem tilgreindu lægra útboðsgengi fengu ekki úthlutun.
- Seldir voru 39.667.919 eigin hlutir. Útistandandi hlutir Ísfélags í kjölfar útboðs nema 818.612.313 hlutum.
„Seldir hlutir í áskriftarbók A nema 23.784.770 hlutum að söluandvirði um 3,2 milljarða króna. Við úthlutun voru áskriftir almennt skertar sem nemur um 97% en þó þannig að viðmiðum gagnvart áskriftum starfsmanna Ísfélags og almennum áskriftum var fylgt, líkt og stefnt var að samkvæmt skilmálum útboðsins,“ segir í tilkynningu Ísfélagsins.
Seldir hlutir í áskriftarbók B nema 95.139.081 hlutum að söluandvirði um 14,8 milljarða króna.
Áskriftir á útboðsgengi í áskriftarbók B voru skertar hlutfallslega sem nemur um 48%.
Fjárfestum verður tilkynnt um úthlutun í útboðinu eigi síðar en 4. desember í tölvupósti. Gjalddagi áskriftarloforða er 6. desember næstkomandi og er ráðgert að afhending hinna nýju hluta til fjárfesta fari fram þann 8. desember.
Stefnt er að því að viðskipti með hlutabréf félagsins á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland hf. hefjist þann 8. desember næstkomandi, en Nasdaq Iceland hf. hefur samþykkt umsókn félagsins um töku hlutabréfanna til viðskipta með fyrirvara um dreifingu hlutafjár fyrir fyrsta viðskiptadag.
„Við erum hæstánægð með mjög góðar viðtökur í útboði Ísfélagsins sem endurspegla trú fjárfesta á bæði félagið og sjávarútveginn. Við bjóðum fjölbreyttan hóp hluthafa velkominn. Staða Ísfélagsins er afar traust og skráning á Aðalmarkað Kauphallarinnar eflir það enn frekar. Skráningin styrkir áframhaldandi vöxt og getu félagsins til sóknar og til að nýta þau fjölmörgu tækifæri sem það stendur frammi fyrir,“ segir Stefán Friðriksson, forstjóri Ísfélags í tilkynningu.